27/10/2026
„Reksturinn gengur ekki nægilega vel og það er viðvarandi hallarekstur. Það er óvissa og ekki bjart framundan í efnahagsmálum, vextir háir og verðbólgan þrálát og við erum í þessu til þess að geta ráðist í betri þjónustu og innviðafjárfestingar sem mikil krafa er um,“ segir Einar Þorsteinsson um þriðju og síðustu uppsagnalotuna. Aðgerðirnar eru liður í því að styrkja fjárhagslega stöðu borgarinnar til framtíðar, standa vörð um mikilvæga þjónustu við borgarbúa og skapa svigrúm til að bæta hana enn frekar, samhliða nauðsynlegu viðhaldi og uppbyggingu innviða. 💚
Einar Þorsteinsson segir engin bein þjónustustörf eða tekjuskapandi störf hafa verið lögð niður í uppsagnarlotu í dag. Hann segir aðgerðirnar miða að því að bæta framlínuþjónustu og tryggja að hægt verði að ráðast í viðhald og uppbyggingu.