Rás 1

Call Directions Website

Rás 1 Útvarp allra landsmanna - FM 93,5 og 92,4. Ríkisútvarpið var stofnað árið 1930 og hóf útsendingar 20.

desember það ár. Það starfar á grundvelli laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu . Ríkisútvarpið skal stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi með fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Það skal leggja rækt við íslenska tungu, menningu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð. Fjölmiðlaefnið skal vera fréttir og fréttaskýringar, fræðsluþættir, íþróttaþættir, afþreying af ýmsum toga, lista- og menningarþættir og sérstakt efni fyrir börn og ungmenni.

Örn Hrafnkelsson var skipaður í embætti landsbókavarðar í mars 2025. Ferill hans við safnið nær þó mun lengra aftur. Ræt...
02/11/2026

Örn Hrafnkelsson var skipaður í embætti landsbókavarðar í mars 2025. Ferill hans við safnið nær þó mun lengra aftur. Rætt var við Örn í þættinum Víðsvegar á Rás 1, þar sem flakkað var um Þjóðarbókhlöðuna.

Örn Hrafnkelsson var skipaður í embætti landsbókavarðar í mars 2025. Ferill hans við safnið nær þó mun lengra aftur.

Krakkarnir sem mótmæltu aðgerðaleysi í loftslagsmálum á Austurvelli vikum, mánuðum, jafnvel árum saman eru orðnir fullor...
01/11/2026

Krakkarnir sem mótmæltu aðgerðaleysi í loftslagsmálum á Austurvelli vikum, mánuðum, jafnvel árum saman eru orðnir fullorðnir. Hvaða augum líta þau þátttöku sína í Loftslagsverkfallinu nú? Sjá þau eftir einhverju? Þetta nútímalíf skoðaði loftslagsverkföllin á Íslandi í baksýnisspeglinum.

„Fyrst var þetta svo valdeflandi en síðan eitthvað svo vonlaust,“ segir Ida Karolina Harris sem tók virkan þátt í loftslagsverkföllum Föstudaga fyrir framtíðina þar til þau lognuðust út af.

„Það borgar sig fyrir okkur að tala upphátt um áföllin okkar í staðinn fyrir að byrgja þau inni,“ segir Fjölnir Gíslason...
31/10/2026

„Það borgar sig fyrir okkur að tala upphátt um áföllin okkar í staðinn fyrir að byrgja þau inni,“ segir Fjölnir Gíslason leikari sem undirbýr heimildarleiksýningu um mannskætt flugslys á Srí Lanka. Hann sagði frá sinni áfallasögu í Segðu mér á Rás 1.

Nýtt íslenskt óperukompaní, hinÓperan, frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu í kvöld. Víðsjá tók tónlistarstjóra verks...
30/10/2026

Nýtt íslenskt óperukompaní, hinÓperan, frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu í kvöld. Víðsjá tók tónlistarstjóra verksins og tvær söngkonur tali í vikunni.

Nýtt íslenskt óperukompaní, hinÓperan, frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu í kvöld en hún fjallar um samband Parísarbóhemanna Gertrude Stein og Alice B. Toklas. Víðsjá tók tónlistarstjóra verksins og tvær söngkonur tali í vikunni.

Vigdís Másdóttir, Grímur Atlason og Pétur Blöndal eru í Menningarpúlsi dagsins á Rás 1 kl. 17. Púlsinn tekinn á menninga...
30/10/2026

Vigdís Másdóttir, Grímur Atlason og Pétur Blöndal eru í Menningarpúlsi dagsins á Rás 1 kl. 17. Púlsinn tekinn á menningarlífinu og rætt m.a. um Högg, menningarhám, tengsl og bókasöfn.

Í nýjasta þætti Víðsvegar var fjallað um Öxi, fjallveginn á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif hefur þessi holót...
30/10/2026

Í nýjasta þætti Víðsvegar var fjallað um Öxi, fjallveginn á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif hefur þessi holótti og gamli malarvegur á líf ungs fólks á Djúpavogi og fjölskyldur þeirra? Og hver er saga þessa vegar?

28/10/2026

Tryggvi Rúnar Leifsson, Sævar Ciesielski og Erla Bolladóttir voru öll rúmlega tvítug þegar þau voru handtekin rétt fyrir jólin 1975 sökuð um aðild að hvarfi Guðmundar og Geirfinns. Dóttir Erlu og Sævars var þá tæplega þriggja mánaða og sonur Tryggva Rúnars ársgamall.
Tryggvi Rúnar Brynjarsson, sagnfræðingur og barnabarn Tryggva Rúnars Leifssonar, er viðmælandi í fimmta þætti Betrunar á Rás 1.

27/10/2026

Tryggvi Rúnar Brynjarsson sagnfræðingur hefur rannsakað Guðmundar- og Geirfinnsmálið undanfarin ár en afi hans, Tryggvi Rúnar Leifsson, var dæmdur í 13 ára fangelsi í Hæstarétti 1980 fyrir að myrða Guðmund Einarsson. Tæpum 40 árum síðar var hann sýknaður af öllum sakargiftum.
Tryggvi Rúnar, sem sat í gæsluvarðhaldi í rúm fjögur ár, þar af í einangrun í Síðumúlafangelsinu í tæp 2 ár, var látinn þegar Hæstiréttur sýknaði hann af öllum sakargiftum.
Tryggvi Rúnar Brynjarsson segir sögu afa síns í 5. þætti Betrunar á Rás 1 👈

Guðmundur Andri Thorsson var gestur í Mannlega þættinum og segir frá því lífsstarfi sínu að vera lesandi innipúki.
27/10/2026

Guðmundur Andri Thorsson var gestur í Mannlega þættinum og segir frá því lífsstarfi sínu að vera lesandi innipúki.

Guðmundur Andri Thorsson hefur gert það að sínu lífsstarfi að vera lesandi innipúki sem skrifar eitthvað líka. Ævistarfið var ráðið þegar hann dvaldi hjá ömmu sinni og afa norður á Akureyri þar sem hann gramsaði í bókum heilu sumrin.

Sýslumennirnir töldu sem sagt að besta lausnin við þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að...
24/10/2026

Sýslumennirnir töldu sem sagt að besta lausnin við þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að taka þá af lífi. Þetta fæli líka í sér tímasparnað. Í stað þess að þurfa að fara með sakamanninn með sér fram og aftur um landið gæti sýslumaður bæði fellt og fullnægt dómnum á einum og sama deginum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjórða þætti Betrunar en þættirnir eru á dagskrá Rásar 1 á þriðjudögum.

Sakamönnum fjölgaði mjög um miðja 18. öld og þeim fylgdi mikill kostnaður. Sýslumönnum þótti nóg um og vildu í hagræðingarskyni fá að dæma og taka menn af lífi samdægurs. Betrun er á dagskrá Rásar 1.

Address

Efstaleiti 1
Reykjavík
150

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rás 1 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category

Nearby government services