16/06/2026
Takk fyrir frábæran dag á þjóðhátíðarskemmtun í dag 🇮🇸
Menning - virkni - samvera Vitatorg er félagsmiðstöð/samfélagshús. Á Vitatorgi fer fram margbreytilegt starfsemi og fjölbreytt félags- og tómstundastarf.
Félagsmiðstöðin er öllum opið óháð aldri og búsetu. Fótaaðgerðastofa, Hanna Kristín - sími 552 9930
Hársnyrtistofa, Hrefna - sími 411 9464
Matseðil og upplýsingar um hádegisverð í félagsmiðstöðvum má finna hér: https://reykjavik.is/hadegisverdur-i-felagsmidstodvum
Matseðil og upplýsingar um heimsendan mat má finna hér:
https://reykjavik.is/heimsendur-matur
16/06/2026
Takk fyrir frábæran dag á þjóðhátíðarskemmtun í dag 🇮🇸
15/06/2026
Við tökum forskot á Þjóðhátíðardaginn á morgun, þriðjudaginn 16. júní 🇮🇸
Dagskráin er svona:
13:00 - Kaffi í boði
13:30 - Kynning á nýju hjóli
14:00 - Zumba
14:30 - Kveikt á grillinu og pulsur í boði
ATH: Vegna dagskráar verður ekkert síðdegiskaffi í matsalnum þennan dag!
Við hlökkum til að njóta dagsins með ykkur 😎
12/06/2026
Dagskrá næstu viku er stórskemmtileg! 🤠
Við tökum forskot á Þjóðhátíðardaginn og fögnum honum á þriðjudaginn með grilli, tónlist og fleira 🇮🇸
Það verður engin dagskrá á 17. júní, en hádegismatur klukkan 11:30 - 12:30, eins og venjulega. Á miðvikudaginn sinnum við fallega garðinum okkar og kíkjum í smá miðbæjarferð og svo er föstudagurinn klassískur með Bingó! 💚
Takk fyrir frábæra viku og sjáumst hress í næstu 😉
10/06/2026
Við minnum á síðasta dansleik sumarsins með Vitatorgsbandinu, í dag klukkan 14:00 ❤️
09/06/2026
Á fimmtudaginn verður garðadagur hjá okkur á Vitatorgi. Við munum gróðursetja og gera garðinn fínann og njóta þess með kaffi og ís og góðrar samveru 🐝🌿
Á morgun, miðvikudaginn 10. júní, klukkan 10:00 förum við í Garðheima að undirbúa garðadaginn og þau sem vilja eru velkomin að koma með 😊
Sjáumst hress og kát í garðinum! 🩷
08/06/2026
Á morgun, þriðjudaginn 9. júní klukkan 10:30 ætlum við í göngutúr í Styttugarð Einars Jónssonar! 🚶♀️🚶🚶♂️
05/06/2026
🌿 Dagskrá næstu viku á Vitatorgi – 8.–12. júní 🌿
Það verður líf og fjör hjá okkur í Samfélagshúsinu Vitatorgi í næstu viku.
Við ætlum að gera okkur dagamun og undirbúa garðinn fyrir sumarið. Á miðvikudaginn förum við í Garðheima til að kaupa matjurtir og eitthvað fallegt fyrir garðinn. Á fimmtudaginn verður svo garðdagur þar sem við setjum niður plöntur, snyrtum til og gerum garðinn okkar sumarlegan og fallegann og fáum einhverjar hressingu. Öll sem vilja taka þátt eru hjartanlega velkomin.
Í vikunni verður líka fjölbreytt dagskrá eins - síðasti dansleikur vetrarins með Vitatorgsbandinu, leikfimi með InterAct, fatasala með Logy fatnaði og margt fleira skemmtilegt
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga góða viku saman á Vitatorgi 💚
📍 Samfélagshúsið Vitatorg, Lindargötu 59
☎️ Sími 411-9450
02/06/2026
Dagskrá vikunnar er hér!
Nú erum við að loka 2. hæð vegna sérþrifa og því mun öll dagskrá og síðdegiskaffi falla niður í dag. Við bjóðum upp á kaffi úti í garði í staðin ☕️
Vitatorgsbandið spilar næst-síðustu tónleika sumarsins á miðvikudaginn 🤩
26/05/2026
🌿 Dagskrá vikunnar á Vitatorgi 25.–29. maí
Í vikunni verður fjölbreytt dagskrá hjá okkur: handverk, morgunkaffi, hreyfing og málun með InterAct, bókmenntahópur, bingó, vöfflukaffi, kvikmyndasýning og dansleikur með Vitatorgsbandinu.
📍 Samfélagshúsið Vitatorgi, Lindargötu 59
☎️ 411-9450
*Greiða þarf fyrir þátttöku í dagskrá merkt með stjörnu.
Öll velkomin 💛
15/05/2026
Dagskrá næstu viku er full af viðburðum og afþreyingu!
Leikfimi, kaffi, opnar vinnustofur í myndlist og bókbandi, boccia, félagsvist, bingó og fleira 😎
InterAct verður með málun á þriðjudaginn og Tónmenntaskóli Reykjavíkur verður með tónleika á fimmtudaginn 🎶
Sjáumst hress!
| Monday | 08:30 - 16:30 |
| Tuesday | 08:30 - 16:30 |
| Wednesday | 08:30 - 16:30 |
| Thursday | 08:30 - 16:30 |
| Friday | 08:30 - 16:30 |
| Saturday | 11:00 - 13:00 |
| Sunday | 11:00 - 13:00 |