20/10/2026
Haustfrí í Húsaskóla
Framundan er kærkomið haustfrí hjá nemendum Húsaskóla. Haustfríið er fimmtudag, föstudag og mánudag. Nemendur mæta síðan aftur í skólann samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 27. október.
Haustfríið er gott tækifæri til að breyta aðeins til, hvíla sig frá daglegri rútínu og njóta samveru með fjölskyldunni. Við viljum því hvetja foreldra til að nýta þessa daga, eftir því sem aðstæður leyfa, til að eiga góðar stundir með börnunum.
Reykjavíkurborg býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá í haustfríinu og þar ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem er í boði eru skapandi smiðjur, föndur, ratleikir og ýmsir skemmtilegir viðburðir á bókasöfnum og söfnum borgarinnar. Árbæjarsafn býður til dæmis upp á kertaluktasmiðju og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum verður sérstök hrekkjavökustemning á fyrsta vetrardegi, laugardaginn 24. október. Þá er auðvitað einnig tilvalið að skella sér í sund eða njóta útivistar.
Á heimasíðu Reykjavíkurborgar má finna upplýsingar um dagskrána og ýmsar hugmyndir að skemmtilegri afþreyingu: https://reykjavik.is/haustfri
Umfram allt vonum við að haustfríið gefi börnunum tækifæri til að njóta sín, hvílast, leika sér og eiga góðar stundir með fólkinu sínu. Það er svo mikilvægt að gefa sér tíma fyrir hvert annað í annríki hversdagsins.
Við í Húsaskóla óskum öllum nemendum okkar og fjölskyldum þeirra góðs og notalegs haustfrís.
Við hlökkum til að taka á móti nemendum aftur þriðjudaginn 27. október vonandi úthvíldum, glöðum og tilbúnum í áframhaldandi skemmtilegt skólastarf.
Með hlýjum kveðjum,
Starfsfólk Húsaskóla