Almannarómur

  • Home
  • Almannarómur
Call Website

Almannarómur Miðstöð máltækni og gervigreindar Stjórn Almannaróms 2024-2025 skipa:
Halldór Benjamín Þorbergsson, formaður.

Björgvin Ingi Ólafsson
Magga Dóra Ragnarsdóttir
Páll Ásgeir Guðmundsson
Snævar Ívarsson
Sverrir Norland


Varamenn í stjórn eru:
Birna Ósk Einarsdóttir
Pétur Þ. Óskarsson
Ragnheiður H. Magnúsdóttir


Framkvæmdastjóri Almannaróms
Lilja Dögg Jónsdóttir

Viðburður: Staða gervigreindar á Íslandi - ný útgáfa 5.október nk. 9:00 - 10:30 í GróskuVerið velkomin á morgunverðarfun...
30/09/2026

Viðburður: Staða gervigreindar á Íslandi - ný útgáfa
5.október nk. 9:00 - 10:30 í Grósku

Verið velkomin á morgunverðarfund í tilefni af nýrri útgáfu af Staða gervigreindar á Íslandi. Umfjöllunarefni viðburðarins verður gervigreindarreglugerð ESB (AI act).

Helga Hauksdóttir, sérfræðingur hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, fer yfir meginþætti reglugerðarinnar. Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania, segir frá því hvernig reglugerðin horfir við fyrirtæki eins og Advania og hvaða skref þau eru að taka í undirbúningnum.

Skráning í hlekk hér að neðan.

Advania Ísland Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Eruð þið tilbúin fyrir stafrænt aðgengi?1. október nk. standa ÖBÍ réttindasamtök fyrir ráðstefnu um stafræn aðgengismál ...
28/09/2026

Eruð þið tilbúin fyrir stafrænt aðgengi?

1. október nk. standa ÖBÍ réttindasamtök fyrir ráðstefnu um stafræn aðgengismál þar sem ný íslensk lög verða í brennidepli sem byggja á Evróputilskipuninni WAD, Web Accessability Directive.

Þetta er einstakt tækifæri til þess að fá innsýn í hvernig stafrænt aðgengi virkar í raun og innblástur til þess að koma því í verk.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á og starfa við stafræna þróun og aðgengismál til að taka þátt.

Nánari upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér undir.

Við minnum á morgunverðarfundinn Gervigreind og vinnumarkaðurinn föstudaginn 25. september frá 9:00-10:30 á veitingastað...
23/09/2026

Við minnum á morgunverðarfundinn Gervigreind og vinnumarkaðurinn föstudaginn 25. september frá 9:00-10:30 á veitingastaðnum Eiríksdóttir, jarðhæð Grósku (ath. ný staðsetningu sökum mikillar aðsóknar)

Á viðburðinum kemur fram Erik Brynjolfsson, prófessor við Stanford Institute for Human Centered AI og framkvæmdastjóri Stanford Digital Economy Lab.

Erik er heimsþekktur hagfræðingur og hefur verið leiðandi í rannsóknum á áhrifum gervigreindar á vinnumarkað.

Ráðherra menningar- nýsköpunar- og háskóla, Logi Einarsson, opnar viðburðinn en þar á eftir heldur Erik stutt erindi. Að loknu erindi Eriks munu þau Erik og Lilja Dögg, framkvæmdastjóri Almannaróms, setjast niður og ræða stöðu vinnumarkaðarins, áhrif gervigreindar og hvers konar samfélagslegra breytinga megi vænta á komandi árum.

Boðið verður upp á léttar veitingar. Húsið opnar 8:30.
Vinsamlegast skráið mætingu hér að neðan.
Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku.

Er gervigreind að fara að tortíma mannkyninu?“ Þessa stóru spurningu fékk Gísli Ragnar Guðmundsson, gervigreindarsérfræð...
15/09/2026

Er gervigreind að fara að tortíma mannkyninu?“ Þessa stóru spurningu fékk Gísli Ragnar Guðmundsson, gervigreindarsérfræðingur hjá Almannarómi, í kvöldfréttum RÚV. Tilefnið voru dómsdagsspár sem hafa verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið og vangaveltur um hvort að tæknin sé mögulega að breytast í eitthvað sem við ráðum ekki við.

Málið er hins vegar bæði flókið og einfalt og byggir að hluta til á geópólitískri togstreitu, eins og svo mörg önnur heimsmál. „Hið jákvæða sem kemur upp úr þessu er töluvert meira en það neikvæða,“ segir Gísli Ragnar, sem sér ekki fram á heimsendi af völdum gervigreindar á næstunni.

Íslenskur sérfræðingur í gervigreind segist almennt jákvæður um þróun gervigreindar en segir sjálfsagt að hægja á þróun hennar.

Viðburður: Verið velkomin á formlega opnun Glóðar þann 1. september nk. í Sykursalnum, Grósku. Glóð.ai er nýtt framtak s...
18/08/2026

Viðburður: Verið velkomin á formlega opnun Glóðar þann 1. september nk. í Sykursalnum, Grósku.

Glóð.ai er nýtt framtak sem styður íslenska nýsköpun í gervigreind með aðgangi að þekkingu, gögnum og reikniafli.

Þjónusta Glóðar verður kynnt ásamt vinnustofum þar sem farið verður yfir hvernig aukið reikniafl getur nýst í þinni starfsemi. Glóð er opin þjónusta og aðgengileg fyrir sprota, fyrirtæki og stofnanir.

Viðburðinn er opinn öllum. Ekki er þörf á sérstakri þekkingu eða reynslu af reikniafli til að geta tekið þátt í vinnustofunum.

Viðburðurinn hefst á hádegisverði og lýkur á léttum drykkjum

Hlekk á skráningu má finna hér fyrir neðan.

Við hlökkum til að sjá sem flesta!

Að verkefninu standa Almannarómur - Háskóli Íslands - Reykjavik University - Veðurstofa Íslands - Icelandic Met Office - Vísindagarðar HÍ // UI Science Park og Árnastofnun.

Við minnum á að lokafrestur til að sækja um í máltæknisjóðinn Skerf er 20. ágúst næstkomandi. Skerfur styrkir verkefni s...
11/08/2026

Við minnum á að lokafrestur til að sækja um í máltæknisjóðinn Skerf er 20. ágúst næstkomandi. Skerfur styrkir verkefni sem fela í sér innleiðingu og/eða hagnýtingu á íslenskri máltækni. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu okkar: almannarómur.is

Almannarómur var stofnaður árið 2014 með það að markmiði að tryggja íslenskunni stað í stafrænni framtíð.Með framförum í...
22/06/2026

Almannarómur var stofnaður árið 2014 með það að markmiði að tryggja íslenskunni stað í stafrænni framtíð.

Með framförum í tækni á liðnum árum, og þá ekki síst tilkomu stórra mállíkana, hefur gervigreind skipað sér stærra pláss í heiminum öllum og hefur orðið æ íburðarmeiri í starfsemi Almannaróms.

Við erum því í dag bæði miðstöð máltækni og gervigreindar, bæði af því að tæknin hefur drifið okkur þangað en ekki síður af því við sjáum þörf fyrir að vinna markvisst að ábyrgri hagnýtingu og þróun gervigreindar, með íslenskar þarfir og menningu að leiðarljósi.

Þannig byggjum við á grunninum sem við búum að úr máltækni en vinnum nú einnig á öllum sviðum gervigreindar til stuðnings fyrir íslenskt samfélag.

Með breyttum högum okkar var þörf á nýrri ásýnd, sem gerir nýrri og metnaðarfullri stefnu okkar skil. Almannarómur sækir fram fyrir hönd Íslands í stafrænum heimi og allir okkar snertifletir þurfa að miðla því á skýran og aðgengilegan máta.

Heimasíðan okkar var því einnig byggð upp frá grunni, bæði útlits- og efnislega. Meginhlutverk síðunnar er að auka skilning og þekkingu á verkefnum Almannaróms en ekki síður að máltækni, lausnir fyrir íslensku í tækni og ýmis verkefni sem styðja við þróun og hagnýtingu gervigreindar á Íslandi séu gerða skiljanleg og aðgengileg fyrir breiðari hóp.

Sjá meira á www. almannaromur.is

Við þökkum Gangverk, og þá sérstaklega Ástrós Ásmundsdóttir og Önnu Berglindi Finnsdóttir, fyrir vel unnið verk og ánægjulegt samstarf.

Norræn vinnustofa um gervigreindarvistkerfið – vertu með!Almannarómur í samstarfi við Nordic AI Union og Haaga-Helia Uni...
01/04/2026

Norræn vinnustofa um gervigreindarvistkerfið – vertu með!

Almannarómur í samstarfi við Nordic AI Union og Haaga-Helia University of Applied Sciences býður til norrænar vinnustofunni um gervigreindarvistkerfið í Reykjavík dagana 7. og 8. apríl 2026.

Á þessum tveggja daga viðburði koma saman fulltrúar frá opinberum aðilum, fyrirtækjum, rannsakendum og öðrum lykilaðilum víðs vegar af Norðurlanda- og Eystrasalts­svæðinu til að skoða meðal annars:

- Stuðningskerfi fyrir nýsköpun í gervigreind
- Regluverk, regluvörslu og gervigreindarlöggjöf ESB (AI Act)
- Samstarf innan vistkerfisins, stefnumótun og sameiginlegar áskoranir
- Tengslamyndun með leiðandi hagsmunaaðilum á svæðinu

Staðsetning: Gróska, Vísindagarðar Háskóla Íslands (salur: Fenjamýri)
Dagsetningar: 7. og 8. apríl 2026
Skráning og dagskrá:

This link will take you to a page that’s not on LinkedIn

Hey Google, talarðu íslensku?Raddstýring er mikilvægur hluti af íslensku í tækni og þar með áherslum okkar hjá Almannaró...
11/02/2026

Hey Google, talarðu íslensku?

Raddstýring er mikilvægur hluti af íslensku í tækni og þar með áherslum okkar hjá Almannarómi.

Í samstarfi við ÖBÍ bjóðum við til opins fundar um stöðuna á raddstýrðri íslensku í snjalltækni. Þar ætlar m.a. Lilja Dögg Jónsdóttir framkvæmdastjóri Almannaróms ásamt fleirum að ræða um stöðuna, tækifærin og næstu skref í átt að tækni sem skilur og svarar á íslensku.

16. febrúar kl. 15:00 í Sigtúni 42 – öll velkomin!
ÖBÍ réttindasamtök

Microsoft styrkir íslenskt máltækniverkefniÍslenskt máltækniverkefni á vegum Háskóla Íslands í samvinnu við Almannaróm e...
27/01/2026

Microsoft styrkir íslenskt máltækniverkefni

Íslenskt máltækniverkefni á vegum Háskóla Íslands í samvinnu við Almannaróm er eitt ellefu evrópskra verkefna sem hlutu svokallaðan Microsoft AI for Good LINGUA-styrkinn, sem veittur var þann 20. janúar síðastliðinn.

Verkefnið hlaut um 6 milljón króna styrk og þótti sérstaklega áhugavert samkvæmt dómnefnd, sem tók fram að verkefnið væri ekki bara tæknilega sterkt heldur hefði það mikla burði til að styðja við aukið jafnrétti í máltækni minni tungumála. Fyrir verkefninu fer Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands.

Meira um þessa spennandi frétt á heimasíðunni okkar, hlekkur í athugasemd.

Háskóli Íslands Almannarómur Microsoft

Address


Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Almannarómur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

  • Want your organization to be the top-listed government service?

Share

Nearby government services