27/10/2026
💛 Það getur skipt máli að spyrja.
Hefur þú áhyggjur af einhverjum sem þér þykir vænt um?
Það er ekki alltaf auðvelt að vita hvað á að segja. En það getur skipt miklu máli að sýna að þú hafir tekið eftir því að eitthvað sé að og að þú sért tilbúin eða tilbúinn að hlusta.
Þú getur til dæmis sagt:
💛 „Ég hef tekið eftir að þú virðist ekki vera alveg þú sjálf/ur. Hvernig líður þér?“
💛 „Ég hef áhyggjur af þér. Viltu segja mér hvað er að gerast?“
💛 „Ég er hér og vil gjarnan hlusta.“
Ef þú hefur áhyggjur af því að einhver sé með sjálfsvígshugsanir er mikilvægt að spyrja beint um þær. Það eykur ekki hættu á sjálfsvígi að spyrja.
Þú þarft ekki að hafa öll svörin. Mikilvægast er að hlusta, taka líðan viðkomandi alvarlega og hjálpa honum að leita stuðnings.
💛 Samtal getur verið fyrsta skrefið í átt að hjálp.