04/06/2026
Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum að nú gengur yfir bylgja svika SMS sem rétt er að vara við. Skilaboðin eru látin líta út fyrir að koma frá umferðarlögreglu og fólki bent á að greiða sekt með því að smella á hlekk í skilaboðunum. Eins og í öðrum svikapóstum er gefin upp stuttur fyrirvari til að greiða sektina og er það eitt af merkjum þess að um svik er að ræða.
Hafi einhver fallið fyrir þessum skilaboðum er viðkomandi bent á að hafa strax samband við viðskiptabankann sinn til að takmarka tjón sitt.
Tilkynna svo málið til lögreglu á
Tilkynna netglæp | Ísland.is
Þegar þrjótar blekkja og svíkja pening af fólki, kúga það eða áreita á netinu kallast það netglæpur. Netsvik og stafræn brot eru sífellt að færast í aukana og ...
26/05/2026
Að gefnu tilefni minnum við á þessi mikilvægu skilaboð frá samstarfsfólki okkar hjá Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.
Með hækkandi sól þá eykst notkun rafmagnshlaupahjóla - hugum vel að hleðslu þeirra 👇👇
11/05/2026
Vilt þú starfa þar sem hver mínúta skiptir máli?
Við hjá Neyðarlínunni leitum að öflugum neyðarvörðum í 100% starf til að sinna svörun fyrir neyðarnúmerið 112, netspjalli og virkjun viðeigandi viðbragðsaðila um land allt.
Starfið er krefjandi, ábyrgðarmikið og afar gefandi
Ef þú hefur sterka þjónustulund, heldur ró þinni undir álagi og vilt vinna með frábærum hópi fólks þá viljum við heyra frá þér.
Neyðarverðir – Neyðarlínan
Neyðarlínan óskar eftir að ráða neyðarverði til að annast svörun fyrir neyðarnúmerið 112 ásamt netspjalli, greina erindi, leiðbeina og virkja viðeigandi viðbragðsaðila. Boðið er upp á krefjandi, ábyrgðarmikið en jafnframt gefandi framtíðarstarf í traustu vinnu umhverfi. ...
04/05/2026
Í dag er alþjóðlegur dagur slökkviliðsmanna og kvenna. Við óskum þeim öllum til hamingju með daginn og vonum að þau þurfi sem allra minnst að gera í dag sem aðra daga.
29/04/2026
Við vekjum athygli á hópslysaæfingu sem haldinn verður á Suðurnesjum laugardaginn 2. maí. Gera má ráð fyrir aukinn umferð viðbragðsaðila og lokunum á sumum svæðum.
Æfingar eru mikilvægar til að samstilla alla viðbragðsaðila þannig að þegar að raun atburðir verða þá gangi allt hratt og vel fyrir sig.
🚑 Hópslysaæfing – Laugardaginn 2. maí 2026
Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum standa fyrir umfangsmikilli hópslysaæfingu í Reykjanesbæ næstkomandi laugardag. Af því tilefni gætu íbúar orðið varir við aukna umferð viðbragðsaðila á svæðinu, auk tímabundinna lokana við Gróf, Ægisgötu og Keflavíkurhöfn. Æfingin hefst kl. 11:00 og lýkur um 14:00.
Til þess að æfingin endurspegli raunverulegar aðstæður sem best verður hluti hennar framkvæmdur í og við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Af þeim sökum má búast við fjölda viðbragðsaðila á HSS og á nærliggjandi svæðum á meðan æfingunni stendur.
Við biðjumst velvirðingar á því ónæði sem kann að skapast og þökkum íbúum fyrir skilninginn.
22/04/2026
Við tökum undir ábendingu félaga okkar hjá Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis - þar sem þurrt er í lofti víða um land er nauðsynlegt að fara varlega með eld í kringum gróður. Lítill neisti verður auðveldlega að stóru báli.
Elsku öll förum varlega og kveikjum ekki í því núna er gróðurinn þurr og eldfimur og verður líklega næstu daga og vikur.
25/03/2026
Farið varlega á morgun.
Á morgun, fimmtudaginn 26. mars er mikilvægt að meta hvort ferðir á þeim svæðum sem veðrið verður verst séu nauðsynlegar. Ef hægt er, verið sem minnst á ferðinni þar sem varasamt ferðaverður verður á stórum hluta landsins og veruleg hætta á foktjóni.
✔️ Fylgist með veðri á vedur.is
✔️ Frestið ferðum ef hægt er
✔️ Festið lausamuni
Gott skipulag dregur úr áhættu og auðveldar störf viðbragðsaðila.
Hér er hægt að fylgjast með hvar og hvenær veðrið verður á morgun: https://www.vedur.is/vidvaranir
18/02/2026
Förum varlega í umferðinni í dag. Það eru allskonar furðuverur á ferðinni.