Borgarlínan

Call Directions Website Contact the organization

Borgarlínan Borgarlínan verður hryggjastykki almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.

30/10/2026

Framkvæmdir við Fossvogsbrú hafa gengið vel en eru nú komnar í vetrardvala. Staðarstjóri Ístaks segir sjóvinnu og nálægð við Reykjavíkurflugvöll helstu áskoranir.

ANNAR ÁFANGI FRAMKVÆMDA VIÐ NAUTHÓLSVEG OG HR AÐ HEFJAST🚧Nú er að hefjast annar áfangi framkvæmda við uppbyggingu innvið...
29/10/2026

ANNAR ÁFANGI FRAMKVÆMDA VIÐ NAUTHÓLSVEG OG HR AÐ HEFJAST

🚧Nú er að hefjast annar áfangi framkvæmda við uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík.

🚶‍♀️🚴 Framkvæmdasvæðið breytist þannig að við bætast svæði vestan Nauthólsvegar auk þess sem núverandi Menntasveigur lokast og verður vinnusvæði.

🚗Ein akrein verður áfram opin í hvora átt og stoppistöðvar Strætó verða áfram í notkun en kunna að færast til eftir því sem framkvæmdum miðar áfram. Menntasveigur lokast og akstri er beint um bráðabirgðavegi gegnum bílastæði sunnan Menntasveigs.

📍 Á meðfylgjandi korti má sjá fyrirkomulag framkvæmdasvæðisins og hjáleiðir í öðrum áfanga, sem stendur yfir samkvæmt áætlun frá 30. október 2026 til 1. maí 2027.

Frekari upplýsingar má finna á framkvæmdasíðu verkefnisins: https://www.borgarlinan.is/framkvaemdir/nautholsvegur-hr

SJÓVINNU LOKIÐ Í FOSSVOGI🌉 Mikilvægum áfanga er lokið við smíði Fossvogsbrúar, Öldu. Undanfarna mánuði hefur verið unnið...
23/10/2026

SJÓVINNU LOKIÐ Í FOSSVOGI

🌉 Mikilvægum áfanga er lokið við smíði Fossvogsbrúar, Öldu. Undanfarna mánuði hefur verið unnið að undirstöðum og burðarásum brúarinnar í Fossvogi og nú er sjóvinnu lokið þetta árið.

Á meðan framkvæmdir hér heima fara í vetrarhlé yfir harðasta veturinn heldur brúarsmíðin áfram í Póllandi. Þar er unnið að brúarstöplum og stálvirki brúarinnar sem verða flutt til Íslands á næsta ári og komið fyrir á undirstöðunum.

🏗️ Árið 2027 verður spennandi! Þá verður komið að einum sýnilegasta áfanga framkvæmdarinnar þegar brúin sjálf fer smám saman að rísa yfir Fossvog.

👉 Nánar um framkvæmdirnar: https://www.borgarlinan.is/framkvaemdir/fossvogsbru

UPPBYGGING BORGARLÍNU VIÐ HLEMMTORGÁ næstu dögum hefjast framkvæmdir við næsta áfanga uppbyggingar Borgarlínu við Hlemmt...
22/10/2026

UPPBYGGING BORGARLÍNU VIÐ HLEMMTORG

Á næstu dögum hefjast framkvæmdir við næsta áfanga uppbyggingar Borgarlínu við Hlemmtorg. Miklar breytingar eru fram undan og Hlemmur mun smám saman taka á sig nýja mynd! 🌿

🚌 Ný stoppistöð Borgarlínu verður byggð og leið hennar lögð um torgið.

🚶‍♀️🚴 Meira rými verður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og umhverfið verður öruggara og aðgengilegra.

🌳 Nýtt og aðlaðandi torgsvæði verður til þar sem almenningssamgöngur fá forgang.

Samhliða framkvæmdunum verður göturými endurgert og lagnir neðanjarðar endurnýjaðar.

Gert er ráð fyrir að þessum áfanga ljúki í lok árs 2027.

Sjá frétt á vef Borgarlínunnar: https://www.borgarlinan.is/utgefid-efni/frettir/uppbygging-borgarlinu-vid-hlemmtorg

NÝR ÁFANGI AÐ HEFJAST VIÐ NAUTHÓLSVEG❗Framkvæmdir vegna Borgarlínu á Nauthólsvegi halda áfram og nú er undirbúningur haf...
16/10/2026

NÝR ÁFANGI AÐ HEFJAST VIÐ NAUTHÓLSVEG

❗Framkvæmdir vegna Borgarlínu á Nauthólsvegi halda áfram og nú er undirbúningur hafinn fyrir næsta áfanga verksins.

🪏Undanfarið hefur verið unnið að jarðvegsskiptum á norðvesturhluta Nauthólsvegar, framan við lóð Flugstjórnarmiðstöðvarinnar.

Malbikun bráðabirgðavega er lokið en þeir tryggja aðkomu að Háskólanum í Reykjavík og Reykjavíkurflugvelli á meðan framkvæmdir standa yfir. Einnig hefur verið malbikaður bráðabirgðavegur yfir bæjarstæði Nauthóls, vestan við HR.

🚗 Gatan Menntasveigur verður lokuð fyrir umferð á meðan framkvæmdir þar standa yfir. Þrátt fyrir lokunina verður aðkoma að Háskólanum í Reykjavík óbreytt.
Aðkoma að malarbílastæðum vestan við HR verður áfram möguleg, annars vegar frá Menntavegi og hins vegar um nýjan bráðabirgðaveg sem liggur yfir bæjarstæði Nauthóls.

📍Samhliða breytingunum verður stoppistöð Strætó við HR færð að rútubílastæðum við hringtorgið nærri inngangi háskólans.

👉Hægt er að fylgjast með framkvæmdunum á framkvæmdasíðunni:
https://www.borgarlinan.is/framkvaemdir/nautholsvegur-hr
Reykjavíkurborg

🚧 HVAÐ ER AÐ GERAST VIÐ HLEMM ÞESSA DAGANA?Framkvæmdir við uppbyggingu Borgarlínu og endurgerð Laugavegar milli Hlemms o...
13/10/2026

🚧 HVAÐ ER AÐ GERAST VIÐ HLEMM ÞESSA DAGANA?

Framkvæmdir við uppbyggingu Borgarlínu og endurgerð Laugavegar milli Hlemms og Katrínartúns standa yfir. Verkið nær einnig til Mjölnisholts norðan við Laugaveg auk tengisvæða Laugarvegar við Ásholt og Mjölnisholt sunnan megin.

En hvað er eiginlega verið að gera?
🔸 Unnið er að endurnýjun götunnar og gangstétta, þar sem meðal annars þarf að fjarlægja eldri yfirborðsefni og byggja upp nýja götu og gangstéttir.
🔸 Framkvæmdin felur í sér endurnýjun veitukerfa, þar á meðal fráveitu, hita- og vatnsveitu, snjóbræðslukerfa og fjarskiptalagna.
🔸 Lagðir verða um 500 metrar af göngu- og hjólastígum sem bæta aðstöðu gangandi og hjólandi vegfarenda.
🔸 Gerðir verða um 250 metrar af sérakreinum fyrir almenningssamgöngur og viðbragðsaðila.

🌳 Samhliða þessu vinnur Reykjavíkurborg að uppbyggingu nýs Hlemmtorgs sem verður grænna og gönguvænna borgarrými með bættri aðstöðu fyrir almenningssamgöngur.

👉 Fylgstu með á framkvæmdasíðunni:
https://www.borgarlinan.is/framkvaemdir/laugavegur-vid-hlemm

🚧 Hefur þú kíkt á framkvæmdasíður Borgarlínunnar?Þar er hægt að fylgjast með stöðu framkvæmda á hverjum stað, séð hvað e...
06/10/2026

🚧 Hefur þú kíkt á framkvæmdasíður Borgarlínunnar?

Þar er hægt að fylgjast með stöðu framkvæmda á hverjum stað, séð hvað er verið að vinna við núna og næstu skref.

📍 Hlemmur
📍 Nauthólsvegur
📍 Fossvogsbrú
📍 og fleira framundan...

Það er til dæmis hægt að sjá hvernig svæðin munu líta út, tímaramma, kort af framkvæmdasvæðinu og margt fleira áhugavert.

👉 https://www.borgarlinan.is/framkvaemdir

🌉 Framkvæmdir við Fossvogsbrú ganga vel. Haustlægðirnar hafa þó haft áhrif síðustu daga en nú sér til betri tíðar. Nú er...
25/09/2026

🌉 Framkvæmdir við Fossvogsbrú ganga vel. Haustlægðirnar hafa þó haft áhrif síðustu daga en nú sér til betri tíðar. Nú er unnið að verkefninu bæði í Fossvogi og í Póllandi.

🇮🇸 Í Fossvogi er unnið að undirstöðum og burðarásum brúarinnar, bæði á landi og neðansjávar. Fyrstu þurrkvíarnar eru komnar niður og fleiri verða settar niður á næstu dögum.

🇵🇱 Í Póllandi er á sama tíma hafin steypa á brúarstöplum sem verða fluttir til Íslands á næsta ári og hífðir á sinn stað. Stálvirki brúarinnar verður einnig smíðað þar.

👉 Nánar má lesa um málið í frétt á vef Borgarlínunnar:
https://www.borgarlinan.is/utgefid-efni/frettir/bruarsmidi-gengur-vel

🚌Betri samgöngur héldu upplýsingafund í Háskólanum í Reykjavík í vikunni vegna framkvæmda við Borgarlínu við Nauthólsveg...
18/09/2026

🚌Betri samgöngur héldu upplýsingafund í Háskólanum í Reykjavík í vikunni vegna framkvæmda við Borgarlínu við Nauthólsveg. Farið var yfir stöðu framkvæmdanna, næstu áfanga og hvernig aðgengi að svæðinu verður háttað á framkvæmdatímanum.

👉Fundurinn er liður í reglulegri upplýsingagjöf til þeirra sem starfa og stunda nám á svæðinu og skapa vettvang fyrir samtal um áhrif framkvæmdanna.

📍Nánari upplýsingar um fundinn og framkvæmdirnar má finna í frétt: https://www.borgarlinan.is/utgefid-efni/frettir/upplysingafundur-i-hr-vegna-framkvaemda

BURÐARVIRKI FOSSVOGSBRÚAR🚧Framkvæmdir við smíði Öldu, brúar yfir Fossvog, hafa staðið yfir síðan í apríl og þeir sem lei...
12/07/2026

BURÐARVIRKI FOSSVOGSBRÚAR
🚧Framkvæmdir við smíði Öldu, brúar yfir Fossvog, hafa staðið yfir síðan í apríl og þeir sem leið eiga um Fossvoginn sjá nú glöggt hvernig burðarvirkið rís upp úr hafinu í beinni línu milli Kópavogs og Reykjavíkur.
➡Verkinu miðar vel áfram og áætlað er að brúin verði tilbúin til notkunar eftir 2 ár. Hægt er að fylgjast með framvindu verksins á vef Borgarlínunnar: https://www.borgarlinan.is/framkvaemdir/fossvogsbru
Reykjavíkurborg Kópavogsbær Betri samgöngur ohf.
📸Ljósmyndir: Gunnar Svanberg

Address

Hafnarstræti 7
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545641788

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Borgarlínan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Borgarlínan:

Shortcuts

Share

Nearby government services