04/11/2026
🌱 Græn skref taka næstu skref!
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að endurskoðun og uppfærslu Grænna skrefa í ríkisrekstri. Markmiðið er að einfalda verkefnið, gera það aðgengilegra og styðja enn betur við markvisst umhverfisstarf ríkisstofnana.
✅ Uppfærður gátlisti – Aðgerðir hafa verið endurskoðaðar og skýrðar, með aukinni áherslu á mælanlegan árangur, markmiðasetningu og reglulega eftirfylgni. Með breytingunum er stefnt að því að auðvelda stofnunum að innleiða umhverfisvænar aðgerðir í daglegan rekstur og fylgjast með árangri þeirra.
🌐 Uppfærð heimasíða – Heimasíða verkefnisins, www.grænskref.is, hefur einnig verið uppfærð. Þar má finna nýja gátlistann ásamt upplýsingum og leiðbeiningum um verkefnið.
🌿 Fimmta skrefinu náð samkvæmt uppfærðum gátlista!
Á haustmánuðum náði heyrnalausra og heyrnaskertra þeim glæsilega áfanga að ljúka fimmta og síðasta skrefi Grænna skrefa samkvæmt nýuppfærðum gátlista verkefnisins.
Við óskum Samskiptamiðstöðinni innilega til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir metnaðarfullt starf í þágu umhverfismála! 💚