09/10/2026
Vel gert 🌹🌹🌹
Samningar halda ✅
Með samstilltu átaki.
Við tryggjum frið á vinnumarkaði og vinnum niður verðbólguna. Með afmörkuðum aðgerðum. Og án þess að ógna hallalausum fjárlögum árið 2027.
Þetta er önnur nálgun en oft hefur tíðkast og það skiptir máli. Því að þannig gætum við þess að ríkið kyndi ekki undir verðbólgu eins og verið hefur.
Ég trúi því að þetta verði vendipunktur í baráttunni við verðbólguna.
Við náum öllum saman um 2,5% hámark á hækkun almennra gjalda hjá ríki og sveitarfélögum. En þá er líka nauðsynlegt að fyrirtækin standi við sín fyrirheit um að halda aftur af verðhækkunum.
Á sama tíma klárum við afmarkaðar aðgerðir í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar.
Við komum þróun barnabóta í fastar skorður.
Við lögfestum févíti vegna brota á lágmarkskjörum launafólks.
Við aukum fyrirsjáanleika fyrir leigjendur – með takmörkun á leiguverðshækkunum.
Við einföldum regluverk til að auðvelda atvinnurekstur og halda aftur af kostnaði.
Og við flýtum uppbyggingu almennra íbúða – með heimild til að fjármagna stofnframlög til íbúða á fyrstu byggingastigum, út árið 2027, án aðkomu sveitarfélaga.
Fleira kemur til sem skiptir máli. Bæði fyrir launafólk og fyrirtækin í landinu.
Ég vil þakka öllum sem komu að góðu þríhliða samtali ríkisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á síðustu mánuðum – og Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem slóst í lið með okkur líka.
Snúum við blaðinu núna. Með samstilltu átaki. Takk 🤝