Nýtt ævintýralegt leiksvæði við Hamradal í innri Njarðvík hefur verið opnað 🛝✨
Sjáumst úti að leika í sumar ☀️🧡
Reykjanesbær
💙 Reykjanesbær er ungt og kraftmikið samfélag í örum vexti þar sem fjölbreytileikinn fær að njóta sín
✨ Fréttir | Viðburðir | Myndir af bæjarlífinu
Þessi Facebook síða miðar að því að bæta þjónustu við íbúa enn frekar. Vakin er athygli á viðburðum og áföngum og því sem er fréttnæmt. Þá er vísað áfram í vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is, fyrir ítarlegri upplýsingar.
Í Reykjanesbæ eru 10 leikskólar, 7 grunnskólar og fjöldi dagforeldra til þjónustu reiðubúin fyrir íbúa. Í bænum er bókasafn, listasafn, byggðasafn, rokksafn og Víkingasafn,
12/06/2026
Sumarupplýsingar í Reykjanesbæ ☀️
🚍 Sumarakstur innanbæjarstrætó hefst á mánudag 15. júní. Yfir sumarmánuðina verður ekið á 60 mínútna fresti í stað 30 mínútna.
Vegna framkvæmda á Faxabraut hafa einnig orðið breytingar á leiðakerfi strætó og mun lítill strætisvagn sinna akstri um Háholtið á meðan framkvæmdum stendur.
🚐 Frá 15. júní til 8. ágúst er heimilt að leggja ferðavögnum á lóðum grunnskóla Reykjanesbæjar. Með því er leitast við að auka öryggi í íbúðagötum bæjarins og draga úr sjónhindrunum í umferðinni.
Nánari upplýsingar um strætó, leiðakerfi og lóðir grunnskólanna má hér 👉 https://rnb.is/sumartilkynning
Gangbraut fjölbreytileikans máluð í dag ❤️🧡💛💚💙💜
11/06/2026
Gangbraut fjölbreytileikans fyrir framan Ráðhús Reykjanesbæjar var máluð í blíðunni í dag 🏳️🌈
Reykjanesbær fagnar fjölbreytileikanum ❤️🧡💛💚💙💜
11/06/2026
Við eigum afmæli í dag! 🎶🥳🎂
Þann 11. júní 1994 sameinuðust Keflavík, Njarðvík og Hafnir og síðan þá hefur samfélagið okkar vaxið og dafnað. Á þessum 32 árum hefur bæjarfélagið stækkað hratt, þróast á fjölbreyttan hátt og haldið áfram að blómstra með öllu því fólki sem hér býr, starfar og tekur þátt í að móta samfélagið okkar 💙
Hjartanlega til hamingju með daginn öll!
10/06/2026
Öflug verkefni hljóta styrki í þágu farsældar barna 🥰👏
Tvö verkefni í Reykjanesbæ hlutu nýverið styrki í þágu farsældar barna frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu.
🏀 Ungmennafélagið Njarðvík fékk 1,3 milljóna króna styrk fyrir verkefnið Allir í körfu, sem miðar að því að auka aðgengi barna á Ásbrú að körfuboltastarfi.
❤️ Íþróttabandalag Reykjanesbæjar fékk 5 milljóna króna styrk fyrir verkefnið Hjarta Ásbrúar, farsældarmiðstöð fyrir börn og fjölskyldur sem verður starfrækt á Ásbrú.
Það er afar ánægjulegt að sjá verkefni úr Reykjanesbæ fá þennan stuðning. Styrkirnir munu nýtast til að efla enn frekar það mikilvæga starf sem unnið er í þágu barna og fjölskyldna í Reykjanesbæ!
Lestu allt um styrkina hér 👉 https://rnb.is/styrkir-i-thagu-farsaeldar-barna
10/06/2026
🌟 Frábær viðurkenning fyrir öflugt skólastarf í Reykjanesbæ 🌟
Drífa Hjördís Thorstensen, kennari við Háaleitisskóla á Ásbrú, hefur hlotið VILJA Hvatningarverðlaun kennara 2026 fyrir framúrskarandi framlag sitt til nýsköpunar í skólastarfi 💡✨
Í starfi sínu hefur Drífa lagt ríka áherslu á að efla sköpunarkraft, lausnaleit og sjálfstraust nemenda. Hún hefur því jafnframt átt stóran þátt í að byggja upp öflugt umhverfi fyrir nýsköpunar- og tæknimennt þar sem nemendur fá tækifæri til að takast á við spennandi áskoranir og þróa hæfni sem nýtist þeim til framtíðar.
Verðlaunin eru ekki aðeins viðurkenning á einstöku framlagi Drífu heldur einnig á því mikilvæga starfi sem unnið er í Háaleitisskóla á hverjum degi til að skapa námsumhverfi þar sem hugmyndir, forvitni og sköpun fá að blómstra 💛
Við óskum Drífu hjartanlega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu!
Lesið nánar um Drífu og ástríðu hennar á kennslu hér 👉 https://rnb.is/drifa-verdlaunud
08/06/2026
Starfsfólk ráðhússins kvaddi Kjartan Má 💐
Starfsfólk ráðhúss Reykjanesbæjar kom nýverið saman til að kveðja Kjartan Má Kjartansson, fráfarandi bæjarstjóra, sem lét af störfum eftir tæplega 12 ár í embætti.
Í kveðjuhófinu var litið yfir farinn veg og Kjartani þakkað fyrir gott samstarf og framlag hans til uppbyggingar og þróunar Reykjanesbæjar á þessum árum 💛
Við þökkum Kjartani Má fyrir farsæl störf í þágu sveitarfélagsins og óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi 👏
08/06/2026
Tungumálakaffið komið í sumarfrí ☕️
Tungumálakaffið „Viltu kaffi? Tölum íslensku saman“ lauk nýverið sinni fyrstu viðburðaröð eftir góða þátttöku í vor.
Verkefnið er samstarf Reykjanesbæjar og MSS og hefur það að markmiði að skapa notalegan vettvang fyrir íbúa af erlendum uppruna til að æfa íslensku í afslöppuðu umhverfi 🥰
Við þökkum öllum sem komu og tóku þátt fyrir samveruna og hlökkum til að hefja tungumálakaffið á ný í lok sumars. Nánari upplýsingar um næstu viðburði verða auglýstar síðar.
Áhugasömum er bent á Facebook-hópinn „Viltu kaffi? Tölum íslensku saman“ þar sem hægt er að fylgjast með fréttum, deila ábendingum um íslenskunám og efla tengsl milli þátttakenda 👉 https://www.facebook.com/groups/968344442664955/
08/06/2026
Losunarstaður fyrir garðaúrgang 🍃
Íbúar Reykjanesbæjar geta losað garðaúrgang á losunarstaðnum að Berghólabraut 2, 230 Reykjanesbæ. Svæðið er opið allan sólarhringinn og er gjaldfrjálst fyrir íbúa sveitarfélagsins 🌼
Losunarstaðurinn er rekinn í samstarfi við Kölku sem annast umsjón svæðisins og sér jafnframt um endurvinnslu þess garðaúrgangs sem þar safnast saman 🤝
Með losunarstaðnum er íbúum boðið upp á aðgengilega og umhverfisvæna leið til að losa garðaúrgang og stuðla þannig að betri nýtingu lífrænna auðlinda 💚♻️
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Contact the business
Website
Address
Tjarnargata 12
Keflavík
230
