Bókasafn Reykjanesbæjar

Bókasafn Reykjanesbæjar

Share

Sama bókasafnskort gildir í öllum almenningsbókasöfnum á Suðurnesjum.

Bókasafn Reykjanesbæjar

Foreldramorgnar - https://www.facebook.com/groups/873386116117297/

Leshringur - https://www.facebook.com/groups/926884524080990/

Hespa handavinnuhópur - https://www.facebook.com/groups/1182746986665705 Auk fjölbreytts safnkosts er boðið upp á upplýsingaþjónustu, heimildaleitir fyrir námsfólk og heimsendingar fyrir sjúka og aldraða. Á safninu er lessalur, hópavinnuaðstaða

21/06/2026

🚀 Geimslímgerð í Aðalsafni! 🌌

Ertu til í að búa til þitt eigið geimslím? Í upphafi sumars völdu krakkar í krakkakosningunum hvað þau vildu gera – og slímgerðin bar svo sannarlega sigur úr býtum! 🏆

📅 Hvenær: 25. júní frá kl. 14:00 - 17:00
📍 Hvar: Aðalsafni

Við útvegum allt efni á staðnum (á meðan birgðir endast) og það kostar ekkert að taka þátt! 🌟

💡 Munið: Börn 8 ára og yngri mæta í fylgd með fullorðnum.
🫙 Græni herinn: Við hvetjum ykkur til að koma með tóma krukku eða lítið plastílát að heiman til að taka slímið með ykkur heim í geiminn!

19/06/2026

Bók fyrir forvitna krakka (og fullorðna), kjörin í sumarlesturinn áður en myrkrið skellur á!

Skemmtileg og skorinort, stútfull af frábærum fróðleik og fjörugum staðreyndum úr heimi vísindanna.

Við minnum á að þú getur keypt sólmyrkvagleraugu hjá okkur.

17/06/2026

Hæ, hó, jibbí-jei, það er kominn 17. júní! Gleðilega þjóðhátíð.

Við fögnum þjóðhátíðardeginum og afmælisdegi Jóns Sigurðssonar.

Eigið dásamlegan dag, hvort sem þið gæðið ykkur á sykurfrauð, fylgist með skrúðgöngunni eða slakið á með góða bók!

Lokað í Stapasafni og helgaropnun í Aðalsafni (kl. 10–17).

15/06/2026

Alltaf inni. Aldrei skila!

Í Rafbókasafninu (í gegnum Libby-appið) er að finna risastórt úrval af erlendum gæðatímaritum. Mundu bara að pakka spjaldtölvunni í sumarfríið 🌞😉

14/06/2026

Stapasafn verður með örlítið breyttan opnunartíma en á Aðalsafni er allt með hefðbundnu sniði. Tilvalið er að kíkja við og næla sér í lesningu fyrir ströndina eða pallinn!

Aðalsafn er opið sem hér segir:
Virka daga: kl. 9–18
Helgar: kl. 10–17

Kíktu við og finndu sumarlesturinn þinn – við hlökkum til að sjá þig! 🌞📖

13/06/2026

🌀 Hannaðu þína eigin rellu! 🌀

Vantar þig og krakkana skemmtilega samveru í upphafi vikunnar? Mánudaginn 15. júní ætlum við að breyta Aðalsafninu í skapandi rellu-verkstæði!

Hvenær: Mánudaginn 15. júní kl. 15:30 - 17:30

Fyrir hverja: Öll skapandi börn í fylgd með fullorðnum.

Verð: Algerlega ókeypis og allt efni á staðnum!

Leyfðu ímyndunaraflinu að ráða för og búðu til litríka rellu sem snýst í vindinum. Við hlökkum til að sjá ykkur – öll velkomin! 🎨✨

12/06/2026

Dreymir þig um að byrja með eigið hlaðvarp?

Við höfum opnað dyrnar að glænýju hljóðveri! Nú getur þú látið gamlan (eða nýjan) draum rætast og tekið upp þitt eigið hlaðvarp með fullkomnum hljóðmixer og tveimur hágæða hljóðnemum.

Það eina sem þú þarft að gera er að mæta með hugmyndina – það er nóg pláss fyrir gest eða spjalltvíeyki.

12/06/2026

Hefur þú lesið í baðkari, inni í bíl, úti á trampólíni eða inni í skáp með vasaljósi?

Sumarlesturinn okkar er farinn í loftið og þátttökuseðlar eru til reiðu á bókasafninu!

Verkefnið er svo tvíþætt. Annars vegar að lesa á fimm ólíkum geimstöðvum og merkja við alla staðina og hins vegar að hjálpa geimförunum að leysa stafarugl með orðum sem tengjast geimnum.

Munið að skrá nafn og símanúmer og skila inn seðlinum því það verður dregið úr heppnum þátttakendum – veglegir vinningar í boði.

Gangi ykkur vel og megi lesturinn ná nýjum hæðum í sumar!

11/06/2026

Dreymir þig um að byrja með eigið hlaðvarp?

Við höfum opnað dyrnar að glænýju hljóðveri! Nú getur þú látið gamlan (eða nýjan) draum rætast og tekið upp þitt eigið hlaðvarp með fullkomnum hljóðmixer og tveimur hágæða hljóðnemum.

Það eina sem þú þarft að gera er að mæta með hugmyndina – það er nóg pláss fyrir gest eða spjalltvíeyki.

Hóaðu í okkur og við komum ykkur af stað. Síðan er bara að tengja tölvuna, ýta á upptöku og láta gamminn geisa. Svo einfalt er það að verða næsti hlaðvarpssnillingurinn!

10/06/2026

NÝTT Á SAFNINU 📚📖

Að stíga inn í einn þekktasta bókmenntaheim sögunnar!

Áhrifamikil og djörf endursköpun á skáldsögunni frægu 1984 eftir George Orwell þar sem varpað er ljósi á líf kvenna í Eyjaálfu.

Hér beinist sjónarhornið að Júlíu, einni dularfyllstu persónu 1984. Kæfandi veruleiki Eyjaálfu lifnar við á nýjan og óhugnanlegan hátt og afhjúpar það sem þarf til að lifa af undir stöðugu eftirliti Stóra bróður.

Mögnuð skáldsaga sem býður jafnframt upp á nýja sýn á hið sígilda verk Orwells. Söndru Newman tekst að virða frumtextann en á sama tíma að gagnrýna karlmiðað sjónarhorn hans.

Bókin er dökkt, grípandi og afar áhrifaríkt verk og skyldulesning fyrir alla aðdáendur Orwells og þá sem hafa gaman af vandaðri dystópíu (framtíðartryllum).

Want your business to be the top-listed Government Service in Njarðvík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Hjallavegur 2
Njarðvík
260

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 18:00
Saturday 10:00 - 17:00
Sunday 10:00 - 17:00