Sagatrail Iceland

Sagatrail Iceland

Share

Sagatrail Iceland - The Icelandic Saga and Heritage Association promotes the historical and cultural background of Iceland.

Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

19/05/2026

Við óskum Listasafni Íslands til hamingju með íslensku safnaverðlaunin 2026. 🎉

Listasafn Íslands hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2026

Þann 18. maí á Alþjóðlega safnadeginum voru Íslensku safnaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn. Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að verðlaununum, sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum og ríkti mikil gleði meðal safnafólks sem fjölmennti á viðburðinn og fagnaði blómlegri starfsemi safna á Íslandi.

Verðlaunin að þessu sinni hlaut Listasafn Íslands fyrir viðspyrnu gegn málverkafölsun en í umsögn valnefndar segir meðal annars:

"Sýningin Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir er einstakt og tímabært framlag til íslensks safnastarfs þar sem fræðileg rannsókn, fagleg ábyrgð og hugvitsamleg miðlun sameinast, í þágu almennings. Með því að sýna fölsuð og ófölsuð verk hlið við hlið, opna rannsóknargögn og gera flókið viðfangsefni aðgengilegt tókst með sýningunni að varpa ljósi á viðkvæmt en brýnt málefni á ábyrgan hátt.
[…]
Almenn þekking á íslenskri listasögu er mikilvæg viðspyrna gegn fölsunum og þar hefur Listasafn Íslands lagt sitt lóð á vogarskálarnar með metnaðarfullri og djarfri umfjöllun um viðkvæma þætti innan íslenskrar listasögu sem hafa hingað til ekki hlotið faglega og ítarlega framsetningu og umfjöllun sem þessa."

Þau söfn sem hlutu einnig tilnefningu til verðlaunanna voru Borgarsögusafn fyrir verkefni á sviði inngildingar og öflug tengsl við samfélagið, Minjasafn Austurlands fyrir verkefnið Kjarval á Austurlandi, Stofnun Árna Magnússonar fyrir sýninguna Heimur í orðum og Tækniminjasafn Austurlands fyrir uppbyggingu og endurreisn.

Í valnefnd sátu Birta Guðjónsdóttir, Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir, Hjörtur Þorbjörnsson og Hörður Geirsson. Alma Sigurðardóttir var formaður nefndarinnar.

Photos from Eiríksstaðir's post 19/05/2026
Photos from Old Icelandic Books's post 19/05/2026
Photos from Minjasafn Austurlands - East Iceland Heritage Museum's post 19/05/2026

Innilegar hamingjuóskir!

22/04/2026

Við óskum Byggðasafni Skagfirðinga innilega til hamingju með þennan mikla heiður sem safnið hefur hlotið fyrir fornverkaskólann. / Congratulations to Skagafjörður Heritage Museum for this honour.

22/04/2026

Fulltrúar Samtaka um söguferðaþjónustu verða að sjálfsögðu á HITTUMST í Ráðhúsi Reykjavíkur 6. maí n.k. Hlökkum til að sjá ykkur! / Sagatrail Association representatives will be at HITTUMST in the City hall on 6 May. We are looking forward to seeing you there!

11/04/2026

Góðar fréttir!

Við höfum nú birt niðurstöður úr árlegri ferðavenjukönnun Íslendinga. Þær sýna að árið 2025 var líflegt ferðaár meðal landsmanna, þó lítilsháttar samdráttur hafi orðið í utanlands- og dagsferðum.

Áform fyrir árið 2026 benda til áframhaldandi stöðugleika og fjölbreyttra ferðavenja. Sérstaklega vekur athygli að töluverður hluti landsmanna hyggst ferðast til að fylgjast með almyrkva í ágúst.

Könnunin var unnin af Gallup fyrir Ferðamálastofu í janúar og febrúar síðastliðnum.

Sjá nánar í fyrstu athugasemd.

Photos from Sagatrail Iceland's post 01/10/2025

Samtök um söguferðaþjónustu taka þátt á Vestnorden 2025 á Akureyri.
Sagatrail Iceland participate in the https://vestnorden.com in Akureyri.

Want your business to be the top-listed Government Service in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sundagarðar 2
Reykjavík
101