Fyrsta lögregluembættið sótt heim 🚨
Á næstu dögum og vikum munum við heimsækja öll lögregluembætti landsins og kynna fyrirhugaðar breytingar á skipulagi.
Við stefnum að því að fækka embættum, stækka þau og styrkja.
Viðreisn
Listabókstafur Viðreisnar er C. Hefurðu áhuga á að taka þátt í mótun flokksins með okkur? Fylgstu með hér á Facebook síðunni, sem og vefsíðunni www.vidreisn.is .
Viðreisn er frjálslyndur stjórnmálaflokkur sem berst fyrir réttlátu samfélagi, stöðugu efnahagslífi, þátttöku Íslands í alþjóðasamstarfi og fjölbreyttum tækifærum. Með því að líka við Facbooksíðu Viðreisnar ertu ekki að gefa upp stjórnmálaskoðun. Ef þú vilt ganga í Viðreisn, þá getur þú skráð hér: www.vidreisn.is/malefni/vertu-med-i-vidreisn/
Auglýsingar Viðreisnar geta beinst að þeim sem líka vi
Krónan ýkir sveiflur og kostar okkur of mikið.
Ingvar Þóroddsson fer hér yfir skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðilsmálum. 🤝
29/05/2026
Hverjir eru kostir og gallar íslensku krónunnar?
Ný skýrsla um kosti og galla krónunnar í samanburði við evruna er komin út. 🤝
Helstu niðurstöður
🔶 Kostnaður krónunnar er meiri en ábatinn
🔶 Íslenska krónan ýkir sveiflur í stað þess að jafna þær
🔶 Upptaka evru hefur í för með sér lægri vexti, aukinn viðskipti, betri aðgang að fjármálamörkuðum
Skýrslan leggur grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.
Segjum Já við tækifærum Íslands 🇮🇸
29/05/2026
Það er einstök tilfinning að sjá öflugt og frjálslynt Viðreisnarfólk taka nú sæti í meirihlutum í bæjarstjórnum víðs vegar um landið. Við í forystu Viðreisnar erum afar stolt af okkar fólki🧡
Í Reykjavík taka Bjorg Magnusdottir og Róbert Ragnarsson þátt í að leiða borgina áfram. Til að snúa Reykjavík við líkt og þau töluðu um í kosningabaráttunni. Það verður gott að fylgjast með þeim til að stíga inn af festu, taka til í rekstri Reykjavíkur og leggja áherslu á fólkið okkar og fjölskyldurnar.
Í Hafnarfirði taka þau Karólína Helga Símonardóttir og Árni Stefán Guðjónsson þátt í meirihluta og móta framtíð míns dásamlega heimabæjar. Í Mosfellsbæ tekur Gylfi Þór Þorsteinsson sæti í meirihluta og á Ísafirði verður Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri.
Við í Viðreisn eigum sömuleiðis bæjarfulltrúa í Kópavogi - Maríu Ellen Steingrímsdóttur, Árborg - Heiðrúnu Kristmundsdóttur, Múlaþingi - Hólmfríði Rut Einarsdóttur og á Akranesi - Jón Guðna Guðmundsson. Þetta eru allt öflugir einstaklingar sem þora að hugsa stórt fyrir sín samfélög en líka hlusta, vinna saman og nálgast verkefnin af ábyrgð. Og gera það með gildi Viðreisnar að leiðarljósi: frjálslyndi, almannahag og jafnrétti.
Viðreisn er að setja sín mál skýrar á dagskrá um allt land. Mál sem snúast um betri þjónustu, ábyrg fjármál, tækifæri fyrir fjölskyldur og samfélag sem byggir á frelsi.
Viðreisn er í vexti vegna fólks sem er tilbúið að vinna saman, hlusta og láta verkin tala. Það fyllir okkur stolti og bjartsýni fyrir framtíðinni 🇮🇸
Það er komið að þér 🇮🇸
Já! við tækifærum 29. ágúst 🤝
28/05/2026
Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst! 🇮🇸🗳🇪🇺
Nú er að komið þér! 🤝
29. ágúst verður kosið um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Ekki aðild.
Samningaviðræður.
Segjum Já! við tækifærum 🧡🇮🇸
Dagur þjóðarinnar! 🇮🇸
28/05/2026
Sögulegur meirihluti Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefur verið myndaður í Hafnarfirði með stuðning um 60% kjósenda að baki sér. Á komandi kjörtímabili munum við leggja ríka áherslu á ný og fagleg vinnubrögð, ábyrgan rekstur og stóreflt samráð við íbúa, með það skýra markmið að auka lífsgæði allra í bænum. 🧡
28/05/2026
Frjálslyndur meirihluti Viðreisnar, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í Reykjavík 🧡
28/05/2026
Viðreisn bauð fram undir eigin merkjum í fyrsta sinn í Ísafjarðarbæ í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum og náði frábærum árangri. 🧡
Gylfi Ólafssson, oddviti Viðreisnar, handsalaði meirihlutasamstarf við Framsókn og óháða og mun hann taka við sem bæjarstjóri 5. júní. 🤝
Áhersla verður lögð á uppbyggingu og breytingar í skólamálum, áframhaldandi lækkun skulda og fjölmargar aðgerðir til að gera lífsgæðin í Ísafjarðarbæ enn betri fyrir fólk á öllum aldri með bættum innviðum og þjónustu með gildum Viðreisnar um frelsi, ábyrgð og almannahagsmuni framar sérhagsmunum að leiðarljósi. 🧡
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Suðurlandsbraut 22
Reykjavík
108
