03/06/2026
Þá hefur verið skipað í ráð og nefndir fyrir komandi kjörtímabil.
Alls munu 8 fulltrúar af lista okkar taka sæti í ráðum og nefndum bæjarins, ýmist sem aðalmenn eða áheyrnarfulltrúar.
Við hlökkum til komandi verkefna og þess að vinna af heilum hug að hagsmunum allra bæjarbúa á næstu árum.
Bæjarstjórn 2026-2030:
Þórhallur Jónsson
Karen Sigurbjörnsdóttir - Varamaður.
Bæjarráð 2026-2027:
Þórhallur Jónsson - Áheyrnarfulltrúi
Helgi Steinar Halldórsson - varaáheyrnarfulltrúi
Fræðslu- og lýðheilsuráð:
Karen Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Guðjón Andri Gylfason, varaáheyrnarfulltrúi
Skipulagsráð:
Þórhallur Jónsson - Aðalmaður
Helgi Steinar Halldórsson - Varamaður
Umhverfis- og mannvirkjaráð:
Helgi Steinar Halldórsson - Aðalmaður
Darri Rafn Hólmarsson - Varamaður.
Velferðarráð:
Kristrún María Björnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Dana Rán Jónsdóttir, varaáheyrnarfulltrúi
Öldungaráð:
Rannveig Hansen Jónsdóttir - Varamaður.
Hafnarsamlag Norðurlands:
Dana Rán Jónsdóttir - Aðalmaður
Helgi Steinar Halldórsson - Varamaður
Ársþing SSNE:
Þórhallur Jónsson
Helgi Steinar Halldórsson - Varamaður
02/06/2026
Þá er fyrsta bæjarstjórnarfundinum mínum sem oddvita Akureyrarlistans lokið.
Skipað var í ráð og nefndir og erum við bara nokkuð sátt við hlutskipti okkar í þeim málum. Einnig var lagður fram til samþykktar ráðningarsamningur við nýjan bæjarstjóra sem mér fannst ég ekki geta samþykkt.
Tók ég því fyrir hönd Akureyrarlistans þátt í sameiginlegri bókun minnihluta bæjarstjórnar Akureyrar varðandi ráðningu pólitísks bæjarstjóra meirihlutans.
Bókunin er svohljóðandi:
Með því að auglýsa ekki stöðu bæjarstjórans á Akureyri lausa til umsóknar er komið í veg fyrir að faglegt hæfnismat fari fram og útilokað að tryggt sé að hæfasta manneskjan sem völ er á veljist til starfsins. Þá skýtur það skökku við að bjóða einstaklingi með takmarkaða reynslu af sama sviði upp á samskonar launakjör og fyrrum bæjarstjóri hafði, manneskju með umtalsvert meiri starfsreynslu. Launakjör sem munu kosta bæjarsjóð um 40 milljónir króna á ársgrundvelli, upphæð sem jafngildir bróðurpartinum af árlegum kostnaði við brýn verkefni á borð við farteymi inn í grunnskóla Akureyrar.
Þar sem meirihlutinn hefur hvorki sýnt fram á málefnaleg rök fyrir því að ráða ekki fyrrum bæjarstjóra til áframhaldandi starfa né því að fara á svig við faglegt ráðningarferli bæjarstjóra, staðfestum við ekki þennan samning.
13/05/2026
Stutt í kosningar! Hér getur þú smellt þessum fína ramma á prófíl myndina þína. https://akureyrarlistinn.is/profilmynd/