Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Share

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili starfa á tveimur stöðum, Hlíð, Austurbyggð 17, Lögmannshlíð Vestursíðu 9

Photos from Heilsuvernd Hjúkrunarheimili's post 15/06/2026

Í dag fengu íbúar Lögmannshlíðar ánægulega heimsókn þegar Elín Birna starfsmaður kom með hestana Baug og Hörpu í Bandagerðisgarðinn. Íbúarnir nutu samverustundarinna í góða veðrinu, klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð. Gleðin skein úr hverju andliti og margir rifjuðu upp gamlar minningar tengdar hestamennsku. Þeir Guðmundur, Jósep og Siggi létu ekki sitt eftir liggja og skelltu sér á hestbak. Það var greinilegt að þeir höfðu engu gleymt og sátu hestana af öryggi og ánægju. Heimsóknin vakti mikla lukku meðal íbúanna og skapaði notalega stund sem verður lengi í minnum höfð.

Photos from Heilsuvernd Hjúkrunarheimili's post 27/05/2026

Í Lögmannshlíð voru settar niður kartöflur í blíðskapar veðri....áður en hretið skellur á😉

Photos from Heilsuvernd Hjúkrunarheimili's post 27/05/2026

Vorið á Hlíð hefur verið dásamlegt. Við höfum setið og notið sólarinnar, dansað, sungið, málað og fengið góða gesti frá tónlistarskólanum og MA.

26/05/2026

Fengum frábæra heimsókn í Lögmannshlíð í síðustu viku!

☀️Takk fyrir okkur Síðuskóli ☀️

https://www.facebook.com/share/p/1b45zGZkP4/?mibextid=wwXIfr

Íbúar og starfsfólk í Lögmannshlíð, hjúkrunarheimili Heilsuverndar í Glerárhverfi, fengu ánægjulega heimsókn í liðinni viku þegar um 100 nágrannar þeirra úr Síðuskóla litu þar við.

Hlekkur á frétt í fyrstu ummælum.

Photos from Heilsuvernd Hjúkrunarheimili's post 21/05/2026

Ýmis verk eru unnin í smiðjunni af íbúum og starfsfólki Lögmannshlíðar☀️

Ómetanlegir aðstandendur saumuðu út nöfn heimilanna og gáfu þessa fallegu poka sem hjúkrunarfræðingar nota við sín störf 💕 Takk fyrir okkur

Photos from Heilsuvernd Hjúkrunarheimili's post 21/05/2026

Það var heldur betur stuð og stemming á síðasta kráarkvöldi vetrarins á Lögmannshlíð😊

18/05/2026

Tilkynning
Vegna viðhalds á salnum í Hlíð hefur salurinn verið lokaður undanfarnar vikur. Af þeim sökum hefur starfsemi þar legið niðri, þar á meðal Kráarkvöld.
Við hlökkum til að taka salinn aftur í notkun þegar framkvæmdum lýkur og bjóða gesti velkomna á Kráarkvöld og annað starf á ný í haust ☺️

24/04/2026
Photos from Heilsuvernd Hjúkrunarheimili's post 09/04/2026

Við fengum góða heimsókn á Hlíð frá nemendum MA, sem komu og spiluðu við notendur dagþjálfunar og íbúa.
Það var skemmtileg stemming og veitir gleði og ánægju að fá svona heimsókn 🥰

23/03/2026

Fyrirhugað kráarkvöld sem átti að vera á morgun, í Lögmannshlíð, verður því miður að falla niður vegna óviðráðanlegra ástæðna.

Want your business to be the top-listed Government Service in Akureyri?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Austurbyggð 17
Akureyri
600