Vegagerðin

Directions Website

Vegagerðin Færðarupplýsingar má sjá á umferdin.is. Vegna annarra fyrirspurna og ábendinga má nýta hnappinn „Hafðu samband“ á heimasíðu Vegagerðarinnar, vegagerdin.is.

Fyrirspurnum og athugasemdum er ekki svarað hér á Facebook. Facebook síða Vegagerðarinnar er ekki í stöðugri vöktun þannig að ekki er öruggt að fyrirspurnum verði svarað á skjótan hátt. Ef vantar upplýsingar um færð eða ástand vega er best að hringja í síma 1777 en þar eru ætíð nýjustu upplýsingar. Á sumrin er opið virka daga frá 08:00 - 17:00 en alla daga vikunnar á veturna frá 06:30 - 22:00. Formleg erindi, ábendingar eða kvartanir er betra að senda í tölvupósti á netfangið vegagerdin(hjá)vegagerdin.is eða hafa samband við svæðisstöð eða beint við starfsmann, sjá hér http://www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/svaedi-og-simanumer/
twitter:
Instagram: vegagerdin
Snapchat: vegagerd

🚦Ljósastýring verður á brúnni yfir Markarfljót vegna viðhaldsvinnu frá og með 2. nóvember og næstu 6 vikurnar. Umferð ve...
02/11/2026

🚦Ljósastýring verður á brúnni yfir Markarfljót vegna viðhaldsvinnu frá og með 2. nóvember og næstu 6 vikurnar.

Umferð verður stýrt framhjá framkvæmdarsvæðinu með umferðarljósum þar sem aðeins ein akrein verður opin. Hámarkshraði framhjá vinnusvæðinu verður lækkaður í 30 km/klst.
Framkvæmdir hefjast mánudaginn 2. nóvember og er áætlað að þær standi yfir í um 6 vikur, eða til 14 des, ef veður leyfir.

Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát, virða merkingar og hraðatakmarkanir og gæta fyllsta öryggis við vinnusvæðið. Búast má við smávægilegum töfum á umferð.

⛔️ Lokað verður á gatnamótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar, nálægt hitaveitutönkunum, frá hádegi á morgun, mánudaginn ...
01/11/2026

⛔️ Lokað verður á gatnamótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar, nálægt hitaveitutönkunum, frá hádegi á morgun, mánudaginn 2. nóvember til síðdegis fimmtudaginn 5. nóvember vegna vinnu við gerð hringtorgs. Hjáleið merkt á staðnum. Tilkynnt verður um breytingar ef veðurspá verður óhagstæð þegar nær dregur framkvæmdum.

31/10/2026

Færsla á brúargólfi Ölfusárbrúar gengur framar vonum. Var brúin komin yfir ána um hádegi í dag en næstu daga verður tekið niður mastrið sem hélt uppi framenda brúarinnar og stálvirkið fest við brúarstólpana.

Vegagerðin hefur samið við Suðurverk hf. og Fossvélar ehf. um framkvæmdir við verkið Hringvegur (1) um Kjalarnes, 2. áfa...
27/10/2026

Vegagerðin hefur samið við Suðurverk hf. og Fossvélar ehf. um framkvæmdir við verkið Hringvegur (1) um Kjalarnes, 2. áfangi, Vallá – Hvalfjörður.

26/10/2026

🌉 2.000 tonna brúargólf brátt dregið yfir Ölfusá!

Nú styttist í einn umfangsmesta og mest spennandi áfangann við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar. Á næstunni verður 330 metra langt og um 2.000 tonna þungt brúargólf dregið frá austurbakka árinnar yfir á vesturbakkann.

🏗️ Þetta er vandasamt verk sem hefur krafist mikils undirbúnings. Öflugir vökvadrifnir tjakkar munu draga brúargólfið áfram um hálfan metra í einu og gert er ráð fyrir að öll færslan taki um tíu daga.

🎥 Í myndbandinu sýnum við hvernig undirbúningurinn gengur fyrir sig og útskýrum hvernig hægt er að færa svo stórt og þungt mannvirki yfir ána.

Vegagerðin hefur tekið í notkun nýjan, fjarstýrðan lokunarbúnað á Reykjanesbraut í áttina til Keflavíkur, við mislæg gat...
21/10/2026

Vegagerðin hefur tekið í notkun nýjan, fjarstýrðan lokunarbúnað á Reykjanesbraut í áttina til Keflavíkur, við mislæg gatnamót skammt frá álverinu í Straumsvík.

Með búnaðinum er hægt að loka brautinni með stuttum fyrirvara, sem styttir viðbragstíma og eykur öryggi bæði vegfaranda og viðbragðsaðila.

Sjá nánari frétt:

Vegagerðin hefur tekið í notkun nýjan, fjarstýrðan lokunarbúnað á Reykjanesbraut til vesturs, við mislæg gatnamót skammt frá álverinu í Straumsvík. Með búnaðinum er hægt að loka brautinni með stuttum fyrirvara, sem styttir viðbragstíma og eykur öryggi bæði vegfaranda og vi...

➡️ 🚗 Nýja hringtorgið við Rjúpnaveg hefur verið malbikað og er nú opið fyrir umferð. Unnið er að lokafrágangi við miðju ...
20/10/2026

➡️ 🚗 Nýja hringtorgið við Rjúpnaveg hefur verið malbikað og er nú opið fyrir umferð.

Unnið er að lokafrágangi við miðju hringtorgsins svo innri akreinin verður opnuð í næstu viku.

🚴‍♀️🚶‍♂️Áfram er unnið að frágangi göngu- og hjólastíga. Verklok eru áætluð í nóvember.

Nánar má lesa um stöðu framkvæmda hér:
https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/starfsemi/frettir/buid-ad-malbika-hringtorg-vid-rjupnaveg

Betri samgöngur ohf.
Reykjavíkurborg
Kópavogsbær

Vegagerðin minnir vegfarendur á að fylgjast með veðri og færð á www.umferdin.is nú þegar gular viðvaranir eru í gildi um...
18/10/2026

Vegagerðin minnir vegfarendur á að fylgjast með veðri og færð á www.umferdin.is nú þegar gular viðvaranir eru í gildi um allt land.

Upplýsingar um færð á vegum

16/10/2026

Vegagerðin hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2026 fyrir að hafa náð markmiðum verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í efsta lagi stjórnunar.

Óvenju lágum þrýstingi (allt niður í 934 hPa) er spáð yfir landinu í dag. Einnig er allvíða von á mikilli ölduhæð nærri ...
14/10/2026

Óvenju lágum þrýstingi (allt niður í 934 hPa) er spáð yfir landinu í dag. Einnig er allvíða von á mikilli ölduhæð nærri ströndinni.

Líkur eru á hárri sjávarstöðu og jafnvel sjávarflóðum við suður-, austur- og norðurströndina.

Upplýsingar um m.a. ölduspá á grunnslóð og sjávarfallaspá í höfnum er að finna á www.sjolag.is.

Sjá nánari fréttir um hvar líkur eru á sjávarflóðum í kvöld:

https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/starfsemi/frettir/likur-a-sjavarflodum-vid-strondina

Óvenju lágum þrýstingi (allt niður í 934 hPa) er spáð yfir landinu í dag. Einnig er allvíða von á mikilli ölduhæð nærri ströndinni. Líkur eru á hárri sjávarstöðu og jafnvel sjávarflóðum við suður-, austur- og norðurströndina. Upplýsingar um m.a. ölduspá á grunnsló....

Address

Miðstöð: Suðurhraun 3
Garðabær
210

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vegagerðin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Nearby government services