29/10/2026
Manstu eftir snjónum fyrir ári á suðvesturhorninu? ❄️
Á þessum degi fyrir ári, 29. október 2025, mældist snjódýptin í Reykjavík 40 sentímetrar. Aldrei hafði mælst meiri snjódýpt í október frá upphafi mælinga árið 1921. Fyrra metið, áður en þessi snjókoma hófst, var 15 sentímetrar og hafði staðið í rúma öld.
Á myndinni er Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur, við mælingar í mælireit Veðurstofunnar á Bústaðavegi þennan morgun.
Við eigum mörg sterkar veðurminningar. Snjór sem lokaði götunni, óveður sem breytti ferðaplönum eða sólardagur sem virtist engan enda ætla að taka. Mælingarnar hjálpa okkur síðan að setja minningarnar í samhengi.
Hvað er þér minnisstæðast frá þessum snjóadögum?