Kópavogsbær

Directions Website

Kópavogsbær Opinber Facebook-síða Kópavogsbæjar. Hér miðlar bærinn upplýsingum um þjónustu, stjórnsýslu, viðburði, mannlíf og annað sem við kemur Kópavogi.

Vantar þig kjörkassa?Við erum að gefa gömlu kjörkassana úr Kópavogi. Hægt er að ná í kassana í þjónustuveri Kópavogs, Di...
29/10/2026

Vantar þig kjörkassa?

Við erum að gefa gömlu kjörkassana úr Kópavogi. Hægt er að ná í kassana í þjónustuveri Kópavogs, Digranesvegi 1, föstudaginn 30. október milli 10.30 og 13.30 og fimmtudaginn 5. nóvember milli 14.00 og 16.00.

Athugið að ekki er hægt að taka kjörkassana frá og eingöngu er hægt að nálgast þá á auglýstum tíma.

Sjáumst :)

🎃 Allir með leikarnir – samkölluð íþróttahátíð í Laugardalshöll! 🏀⚽🎉Það verður sannkölluð íþróttaveisla í Laugardalshöll...
29/10/2026

🎃 Allir með leikarnir – samkölluð íþróttahátíð í Laugardalshöll! 🏀⚽🎉
Það verður sannkölluð íþróttaveisla í Laugardalshöll laugardaginn 31. október kl. 10:00–14:00 þegar Allir með leikarnir fara fram.
Allir með leikarnir er skemmtileg íþróttahátíð fyrir börn og unglinga á aldrinum 6–16 ára með fötlun eða stuðningsþarfir. Þar gefst þátttakendum tækifæri til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar og njóta skemmtilegrar dagskrár- sjá hér 👇

📣 Forvarnarsjóður Kópavogs 2026 – opið fyrir umsóknirForvarnarsjóður Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til verk...
26/10/2026

📣 Forvarnarsjóður Kópavogs 2026 – opið fyrir umsóknir
Forvarnarsjóður Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem stuðla að forvörnum, heilsu og vellíðan Kópavogsbúa. Sérstök áhersla er lögð á börn og ungmenni og verkefni sem hafa jákvæð áhrif á líðan, heilbrigði og framtíð þeirra.
📅 Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember 2026.
Umsóknir eru sendar rafrænt í gegnum Minn Kópavog.
👉 Nánari upplýsingar og umsókn:

Markmið Forvarnarsjóðs er að veita einstaklingum, börnum og ungmennum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum styrki til verkefna sem hafa það að leiðarljósi að efla forvarnir, heilsu og vellíðan Kópavogsbúa.

🌲 Góður dagur á haust- og aðalfundi Grunns, fundur stjórnenda fræðslumála sveitarfélaga af öllu landinu, sem haldinn var...
22/10/2026

🌲 Góður dagur á haust- og aðalfundi Grunns, fundur stjórnenda fræðslumála sveitarfélaga af öllu landinu, sem haldinn var í Guðmundarlundi í dag.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri bauð fundargesti hjartanlega velkomna í upphafi fundar og fór yfir helstu verkefni Kópavogsbæjar í menntamálum. Starfsfólk menntasviðs kynnti öflugt og fjölbreytt starf sviðsins, þar á meðal skimunaráætlun leik- og grunnskóla og innleiðingu stafræns innra mats í skóla- og frístundastarfi.

💚 Góður dagur, góð samtöl og ánægjulegt að fá tækifæri til að miðla því metnaðarfulla starfi sem unnið er í menntamálum bæjarins.

🌸Við leitum að vistforeldrum:🏠Vilt þú veita barni öruggt og hlýlegt heimili þegar á þarf að halda?💞Barnaverndarþjónusta ...
22/10/2026

🌸Við leitum að vistforeldrum:

🏠Vilt þú veita barni öruggt og hlýlegt heimili þegar á þarf að halda?

💞Barnaverndarþjónusta Kópavogs leitar að fjölskyldum sem er tilbúin að taka á móti börnum sem þurfa tímabundið að dvelja utan heimilis.

🫶Leitað er að fólki sem býr við stöðugar heimilisaðstæður og hefur svigrúm til að mæta þörfum barna með hlýju, þolinmæði og skilningi.

ℹ Nánari upplýsingar á vef Kópavogsbæjar

💚Á árinu 2027 verður innritað tvisvar í leikskóla Kópavogs, á vorönn og að hausti.🌸Markmiðið er að mæta betur þörfum bar...
21/10/2026

💚Á árinu 2027 verður innritað tvisvar í leikskóla Kópavogs, á vorönn og að hausti.

🌸Markmiðið er að mæta betur þörfum barnafjölskyldna í bænum.

💚Á næstunni verður opnað fyrir úthlutun á vorönn 2027.

🌸Afar vel gekk að innrita börn haustið 2026 og í fyrsta sinn var börnum niður í 12 mánaða og eldri boðið leikskólapláss.

💚Kópavogsmódelið hefur aukið stöðugleika í starfmannahaldi og bætt starfsumhverfi í leikskólum bæjarins og er meginskýring þess að hægt er að bæta við innritun að vori.

Address

Digranesvegur 1
Kópavogur
200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kópavogsbær posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Nearby government services