Seltjarnarnesbær

Call Directions Website Contact the organization

Seltjarnarnesbær Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Seltjarnarnesbær, Government Organization, Austurströnd 5, Seltjarnarnes.

Athugið! Dagana 30. september - 2. október frá kl. 8:00-16:00 þarf að afmarka vinnusvæði við Nesveg þriðjudaginn vegna f...
29/09/2026

Athugið! Dagana 30. september - 2. október frá kl. 8:00-16:00 þarf að afmarka vinnusvæði við Nesveg þriðjudaginn vegna framkvæmda við nýjan leikskóla. Af þeim sökum verður: Gönguleið innan grænu línunnar lokuð gangandi umferð í 8 klukkustundir eða á meðan framkvæmdir standa yfir. Umferð bíla og almenningsvagna um Nesveg raskast ekki og mun ganga sinn vanagang.
Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar eru beðnir að upplýsa börn sín.
Beðist er velvirðingar á ónæðinu.

Athugið! Þriðjudaginn 29. september kl. 8:00-16:00 þarf að afmarka vinnusvæði við Nesveg þriðjudaginn vegna framkvæmda v...
28/09/2026

Athugið! Þriðjudaginn 29. september kl. 8:00-16:00 þarf að afmarka vinnusvæði við Nesveg þriðjudaginn vegna framkvæmda við nýjan leikskóla. Af þeim sökum verður: Gönguleið innan grænu línunnar lokuð gangandi umferð í 8 klukkustundir eða á meðan framkvæmdir standa yfir. Umferð bíla og almenningsvagna um Nesveg raskast ekki og mun ganga sinn vanagang.

Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar eru beðnir að upplýsa börn sín.

Beðist er velvirðingar á ónæðinu.

Vegfarendur varið ykkur! Óhapp hefur átt sér stað í dag með þeim hætti að mikil olía hefur lekið úr bifreið og er olíubr...
25/09/2026

Vegfarendur varið ykkur! Óhapp hefur átt sér stað í dag með þeim hætti að mikil olía hefur lekið úr bifreið og er olíubrák á báðum akreinum á Lindarbrautinni, Norðurströndinni og eitthvað út Grandann. Þetta veldur mikilli hálku og því eru ökumenn sérstaklega hvattir til að fara varlega þegar að ekið er þessa leið. Búið er að hafa samband við lögreglu og verið að kanna hvort þörf er á að hreinsa þetta upp með einhverjum hætti eða að bíða þar til að rigning skolar olíunni í burtu.

Athugið! Föstudaginn 18. sept. kl. 13-16 verður tímabundin lokun akbrautar, gönguleiðar og strætóstoppistöðvar á Nesvegi...
17/09/2026

Athugið! Föstudaginn 18. sept. kl. 13-16 verður tímabundin lokun akbrautar, gönguleiðar og strætóstoppistöðvar á Nesvegi til móts við Eiðistorg vegna framkvæmda við nýjan leikskóla.
🔸Gönguleið og akbraut til vesturs innan rauðu línunnar lokuð umferð í 3 klukkustundir eða á meðan framkvæmdir standa yfir. Umferð um Nesveg til austurs raskast ekki og mun ganga sinn vanagang.
🔸Strætóstoppistöðin andspænis Eiðistorgi fellur tímabundið niður á meðan á lokuninni stendur.
Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar eru hvattir að upplýsa börn sín.
Beðist er velvirðingar á ónæðinu.

Virkniþing eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi 2026Fyrir helgina fór fram vel heppnað Virkniþing eldri bæjarbúa í safnaðarhe...
08/09/2026

Virkniþing eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi 2026
Fyrir helgina fór fram vel heppnað Virkniþing eldri bæjarbúa í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju. Markmið þingsins var að kynna allt það tómstundastarf og þjónustu sem er í boði fyrir eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi í vetur. Virkniþingið er liður í Íþróttaviku Evrópu sem er haldin ár hvert víðsvegar um landið. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn vaxandi hreyfingarleysi meðal almennings.

Gestir fengu kynningu frá fjölmörgum félagasamtökum og þjónustuaðilum sem bjóða upp á félagsstarf eða þjónustu fyrir eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi. Fulltrúar frá þessum aðilum voru á staðnum, veittu upplýsingar um starfsemi sína og svöruðu spurningum gesta.

Meðal þeirra sem kynntu starfsemi sína voru Nesklúbburinn, sem bauð jafnframt upp á skemmtilega golfþraut fyrir gesti, Frísk í Gróttu sem kynnti heilsueflandi starf og stýrði léttum æfingum, félagsstarfið á Skólabraut, Slysavarnarfélagið, Seltjarnarneskirkja, Bókasafn Seltjarnarness og Félag eldri borgara á Seltjarnarnesi (FEBSEL).

Mikil og góð stemning ríkti á þinginu og nutu gestir þess að eiga samtöl við fulltrúa þátttakenda, fræðast um fjölbreytt tækifæri til þátttöku og hitta aðra bæjarbúa. Boðið var upp á kaffiveitingar og gott var að eiga stund saman þar sem áhersla var lögð á virkni og vellíðan.

Að loknum kynningum tók Helgi Hannesar, píanóleikari, við dagskránni og stýrði samsöng sem vakti mikla ánægju meðal gesta. Samsöngurinn skapaði skemmtilega stemningu og var fallegur endapunktur á vel heppnuðum degi.

Skipuleggjendur þakka öllum þeim sem komu að Virkniþinginu, bæði þátttakendum og gestum, fyrir framlag sitt. Virkniþingið hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir eldri bæjarbúa til að kynnast því fjölbreytta starfi sem í boði er á Seltjarnarnesi og er flottur vettvangur fyrir Seltirninga til að hittast og eiga góða stund saman í byrjun haustsins. Markmiðið þingsins er að efla virkni, heilsu og lífsgæði eldri íbúa bæjarins.

Athugið! Í dag mánudaginn 7. sept. kl. 13-16 verður tímabundin lokun akbrautar, gönguleiðar og strætóstoppistöðvar á Nes...
07/09/2026

Athugið! Í dag mánudaginn 7. sept. kl. 13-16 verður tímabundin lokun akbrautar, gönguleiðar og strætóstoppistöðvar á Nesvegi til móts við Eiðistorg vegna framkvæmda við nýjan leikskóla.

🔸Gönguleið og akbraut til vesturs innan rauðu línunnar lokuð umferð í 3 klukkustundir eða á meðan framkvæmdir standa yfir. Umferð um Nesveg til austurs raskast ekki og mun ganga sinn vanagang.

🔸Strætóstoppistöðin andspænis Eiðistorgi fellur tímabundið niður á meðan á lokuninni stendur.

Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar eru hvattir að upplýsa börn sín.

Beðist er velvirðingar á ónæðinu.

Það var heldur betur margt um manninn á Fjölskyldudeginum í Gróttu síðastliðinn laugardag enda blíðskaparveður og góð st...
01/09/2026

Það var heldur betur margt um manninn á Fjölskyldudeginum í Gróttu síðastliðinn laugardag enda blíðskaparveður og góð stemning. Vitinn og fjaran með sitt aðdráttarafl sem og fjölbreytt dagskrá sem gestir kunnu svo sannarlega vel að meta eins og meðfylgjandi myndir sýna. TAKK FYRIR KOMUNA Í GRÓTTU 🌞

29/08/2026
Vekjum athygli á Góðgerðarleik Gróttu laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 á Vivaldivellinum. Hvetjum bæjarbúa til að styðja...
28/08/2026

Vekjum athygli á Góðgerðarleik Gróttu laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 á Vivaldivellinum. Hvetjum bæjarbúa til að styðja Gróttustelpurnar í leik á móti Selfoss og styrkja gott málefni í leiðinni. Með jafntefli getur Grótta tryggt sér sæti í bestu deild kvenna á næsta ári í fyrsta sinn í sögu félagsins og með sigri tryggja þær sér Lengjudeildartitilinn. Áfram Grótta 💙💛

Address

Austurströnd 5
Seltjarnarnes
170

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 13:00

Telephone

+3545959100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Seltjarnarnesbær posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Seltjarnarnesbær:

Shortcuts

Share