Árnastofnun

Call Directions Website Contact the organization

Árnastofnun Á Árnastofnun er unnið að rannsóknum í íslenskum fræðum og skyldum fræðigreinum.

Í tilefni af því að íslensku handritin sem eru í láni frá Svíþjóð og hafa verið til sýnis á sýningunni Heimur í orðum mu...
30/10/2026

Í tilefni af því að íslensku handritin sem eru í láni frá Svíþjóð og hafa verið til sýnis á sýningunni Heimur í orðum munu brátt halda til síns heima var efnt til viðburðar í fyrirlestrasal Eddu í gær.

Rithöfundarnir Amanda Sophia Svensson og Þórdís Gísladóttir spjölluðu á léttum nótum um sænskar og íslenskar bókmenntir.
Á myndinni má sjá Guðrúnu Nordal, Þórdísi Gísladóttur, Amöndu Persson og Jan Lundin sendiherra Svíþjóðar.

Hægt er að sjá handritin frá Svíþjóð til sunnudagsins 8. nóvember. Nánar um handritin hér: https://arnastofnun.is/is/frettir/fimm-forn-handrit-i-lani-fra-svithjod

Dönsk og íslensk stjórnvöld hafa gert með sér samkomulag um að fjármagna í sameiningu þriggja ára átaksverkefni sem miða...
28/10/2026

Dönsk og íslensk stjórnvöld hafa gert með sér samkomulag um að fjármagna í sameiningu þriggja ára átaksverkefni sem miðar að því að efla rannsóknir á handritum í safni Árna Magnússonar og kynna þau.

Á tímabilinu 2026–2028 verður fjármunum varið til styrkja fyrir vísindafólk til rannsókna á handritum í handritasöfnunum í Kaupmannahöfn og Reykjavík, til tveggja alþjóðlegra ráðstefna sem haldnar verða í Reykjavík og Kaupmannahöfn, auk ýmissa sameiginlegra verkefna sem lúta að kynningu og stafrænni miðlun safnsins.

Hlekkur á nánari upplýsingar í fyrstu athugasemd.

Í hlaðvarpsþætti vikunnar er rætt um nýlega bók um aukapersónur eftir eina aðalpersónuna í norrænum fræðum samtímans. Hv...
28/10/2026

Í hlaðvarpsþætti vikunnar er rætt um nýlega bók um aukapersónur eftir eina aðalpersónuna í norrænum fræðum samtímans. Hvað í frakkanum eru allar þessar griðkonur og smalamenn að gera í Íslendingasögunum, bókmenntum sem við héldum að fjölluðu fyrst og fremst um glæstar hetjur?

Bókin sem rætt er um í þættinum: Ármann Jakobsson, Minor Characters in Icelandic Sagas: A Narratological Study. Palmgrave Macmillan, 2025.

Nýverið heimsótti safnafólk frá Finnlandi, Svíþjóð og Noregi Árnastofnun. Heimsóknin var hluti af Nordplus-verkefni sem ...
26/10/2026

Nýverið heimsótti safnafólk frá Finnlandi, Svíþjóð og Noregi Árnastofnun. Heimsóknin var hluti af Nordplus-verkefni sem snýst um möguleika stafrænnar þróunar fyrir söfn og stofnanir á norðurslóðum.

Í þessari þriggja daga heimsókn var rætt um allt milli himins og jarðar, allt frá stafrænni þróun og stafrænum starfsháttum til safnkosts, skjalasafna og stjórnunarkerfa fyrir safnkostinn. Markmið verkefnisins er að læra hvert af öðru með hliðsjón af sameiginlegum aðstæðum okkar á norðurslóðum.

Í heimsókninni könnuðu gestirnir safnkost og skjalasöfn Árnastofnunar. Þeir fengu jafnframt leiðsögn um sýninguna Heimur í orðum og kynningu á handritunum og varðveislu þeirra.

Með Nordplus-styrknum hefur Norrbottens Museum, Arktikum, Byggðasafni Lapplands, Varanger-safninu í Noregi og Árnastofnun gefist tækifæri til að eiga samstarf um málefni sem varða menningararf og stafræna þróun.

Stefnt er að áframhaldandi samstarf til að efla söfn og menningararfsstofnanir á norðurslóðum.
https://nordplusonline.org/

Í síðustu viku heimsótti safnafólk frá Finnlandi, Svíþjóð og Noregi Árnastofnun. Heimsóknin var hluti af Nordplus-verkef...
23/10/2026

Í síðustu viku heimsótti safnafólk frá Finnlandi, Svíþjóð og Noregi Árnastofnun. Heimsóknin var hluti af Nordplus-verkefni sem snýst um möguleika stafrænnar þróunar fyrir söfn og stofnanir á norðurslóðum.

Í þessari þriggja daga heimsókn var rætt um allt milli himins og jarðar, allt frá stafrænni þróun og stafrænum starfsháttum til safnkosts, skjalasafna og stjórnunarkerfa fyrir safnkostinn. Markmið verkefnisins er að læra hvert af öðru með hliðsjón af sameiginlegum aðstæðum okkar á norðurslóðum.

Í heimsókninni könnuðu gestirnir safnkost og skjalasöfn Árnastofnunar. Þeir fengu jafnframt leiðsögn um sýninguna Heimur í orðum og kynningu á handritunum og varðveislu þeirra.

Með Nordplus-styrknum hefur Norrbottens Museum, Arktikum, Byggðasafni Lapplands, Varanger-safninu í Noregi og Árnastofnun gefist tækifæri til að eiga samstarf um málefni sem varða menningararf og stafræna þróun.

Stefnt er að áframhaldandi samstarf til að efla söfn og menningararfsstofnanir á norðurslóðum.

https://nordplusonline.org/

Vegna öryggisgalla er sem stendur ekki hægt að fletta upp beygingum í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN). Við bi...
21/10/2026

Vegna öryggisgalla er sem stendur ekki hægt að fletta upp beygingum í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN). Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta veldur og vonumst til að vefurinn komist í lag sem fyrst.

Sjá frétt RÚV um málið: https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-21-oryggisgalli-ognar-vefsidum-um-heim-allan-490543

M.is er vefur sem gerir orðabækur og upplýsingar um íslenska tungu aðgengilegri fyrir yngra fólk og fólk sem er að læra íslensku sem annað mál.

21/10/2026

Verið velkomin að hlýða á kammertónlist í hinum glæsilega bókasal Eddu í vetur.

Bergsbók er handrit sem var skrifað á Íslandi um 1400 en flutt til Noregs á sextándu öld. Þaðan fór bókin til Danmerkur ...
21/10/2026

Bergsbók er handrit sem var skrifað á Íslandi um 1400 en flutt til Noregs á sextándu öld. Þaðan fór bókin til Danmerkur og loks til Svíþjóðar.

Bergsbók er feikistór og geymir sögurnar miklu um kristniboðskonungana Ólaf Tryggvason og Ólaf Helga Haraldsson. Á milli sagnanna tveggja eru skrifuð stórkostleg stök trúarkvæði og tengd konungunum tveimur, þar á meðal Geisli Einars Skúlasonar og sjálf Lilja í elstu varðveittu gerð.

Í þessum þætti fengum við Guðrúnu Nordal forstöðumann Árnastofnunar til að segja okkur frá Bergsbók – sögunum, kvæðunum og konungunum tveimur sem þar eru í forgrunni.

Bergsbók er handrit sem var skrifað á Íslandi um 1400 en flutt til Noregs á sextándu öld. Þaðan fór bókin til Danmerkur og loks til Svíþjóðar. Bergsbók er feikistór og geymir sögurnar miklu um kristniboðskonungana Ólaf Tryggvason og Ólaf Helga Haraldsson. Á milli sagnanna tvegg...

Ný vefútgáfa Íslendingasagna er nú í bígerð. Textarnir verða birtir með nútímastafsetningu og þeim fylgja ýmsar skýringa...
19/10/2026

Ný vefútgáfa Íslendingasagna er nú í bígerð. Textarnir verða birtir með nútímastafsetningu og þeim fylgja ýmsar skýringar og aukaefni.

Ný vefútgáfa Íslendingasagna er nú í bígerð og hafa tveir nemar unnið að útgáfunni undanfarna mánuði.

Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti þess á skjön við hin handritin og hefur það löngu...
14/10/2026

Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti þess á skjön við hin handritin og hefur það löngum valdið fræðimönnum heilabrotum.

Í hlaðvarpsþætti vikunnar er rætt við Hauk Þorgeirsson handritafræðing um þennan merka grip.

Uppsala-Edda er eitt af fjórum aðalhandritum Snorra-Eddu. Oft er texti þess á skjön við hin handritin og hefur það löngum valdið fræðimönnum heilabrotum. Í þessum þætti er rætt við Hauk Þorgeirsson handritafræðing um þennan merka grip.

Address

Edda, Arngrímsgata 5
Reykjavík
107

Opening Hours

Monday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 12:00
13:00 - 15:00
Friday 10:00 - 12:00

Telephone

+3545254010

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Árnastofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Árnastofnun:

Shortcuts

Share