Alþingi

Call Directions Website

Alþingi Samfélagsmiðlum Alþingis er haldið úti af samfélagsmiðlateymi skrifstofu Alþingis. Allt efni sem sett er inn af öðrum er á ábyrgð viðkomandi einstaklings.

https://www.althingi.is/um-althingi/upplysingar-um-althingi/althingi-a-samfelagsmidlum/ Við fögnum allri málefnalegri umræðu á Facebook-síðu Alþingis en áskiljum okkur rétt til að fjarlægja meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa. Hér gilda líka almennar notendareglur Facebook, sjá www.facebook.com/terms.php?ref=pf

Allt efni sem sett er inn af öðrum en skrifstofu Alþingis er á ábyrgð viðkomandi einstaklings. Formleg erindi og fyrirspurnir sem notendur síðunnar vilja beina til Alþingis skal senda á netfangið [email protected]. https://www.althingi.is/um-althingi/upplysingar-um-althingi/althingi-a-samfelagsmidlum/

Fylgist með okkur annars staðar á vefnum:

www.althingi.is
www.ungmennavefur.is
www.skolathing.is
www.althingistidindi.is

30/10/2026

Norðurlandaráðsþingið var haldið í Helsinki í vikunni. Dagbjört Hákonardóttir, formaður Íslandsdeildar, segir okkur betur frá.

Forsetar norrænu þjóðþinganna funduðu í Helsinki 27. október í tengslum við 78. þing Norðurlandaráðs. Jussi Halla-aho, f...
27/10/2026

Forsetar norrænu þjóðþinganna funduðu í Helsinki 27. október í tengslum við 78. þing Norðurlandaráðs. Jussi Halla-aho, forseti finnska þingsins, bauð til fundarins.

Sérstakir gestir fundarins voru Sauli Niinistö, fyrrverandi forseti Finnlands, og Antti Helanterä, yfirmaður stefnumótunar í utanríkisráðuneyti Finnlands. Þeir fjölluðu um Rússland og öryggi Evrópu og Norðurlanda frá sjónarhorni varnarmála og viðnámsþróttar.

Þema 78. þings Norðurlandaráðs er „Almennt öryggi á Norðurlöndum“. Þingforsetarnir ræddu einnig virði norræns samstarfs og þau mál sem eru efst á baugi í löndum þeirra.

Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember.
23/10/2026

Umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember.

22/10/2026

Nemendur í Tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ tóku þátt í Skólaþingi í Kvos í morgun. Í leiknum læra nemendur hvernig frumvarp fer í gegnum Alþingi. Þeim er skipt í fjóra þingflokka þar sem hver þingmaður er með tilteknar skoðanir. Hvernig fannst þeim að setja sig í spor þingmanna og stíga í pontu?

Sérstök umræða um um lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum og umönnun aldraðra verður í dag um kl. 14.
22/10/2026

Sérstök umræða um um lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum og umönnun aldraðra verður í dag um kl. 14.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða í dag um kl. 13:30.
22/10/2026

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða í dag um kl. 13:30.

Sérstök umræða um sjálfkeyrandi bíla verður í dag um kl. 14.
19/10/2026

Sérstök umræða um sjálfkeyrandi bíla verður í dag um kl. 14.

16/10/2026

Ráðstefna þingforseta Evrópuráðsþingana er í Róm þessa dagana. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir okkur aðeins frá hvað hefur verið rætt.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sótti ráðstefnu forseta þjóðþinga aðildarríkja Evrópuráðsins í Róm 15.–16. ...
16/10/2026

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sótti ráðstefnu forseta þjóðþinga aðildarríkja Evrópuráðsins í Róm 15.–16. október. Ráðstefnan var haldin í Róm í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að hún fór þar fram í fyrsta sinn og var hún haldin í boði ítalska þingsins.

Ráðstefnan er að jafnaði haldin annað hvert ár, ýmist í Strassborg eða einu af 46 aðildarríkjum Evrópuráðsins.

Forseti Alþingis heimsótti einnig nýstofnað sendiráð Íslands í Róm þar sem Guðmundur Árnason sendiherra kynnti starfsemi sendiráðsins.

Ambasciata d'Islanda a Roma / Sendiráð Íslands í Róm

Address

Kirkjustræti
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Alþingi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share