ADHD samtökin

Call Directions Website Contact the organization

ADHD samtökin Þetta er facebook síða ADHD samtakanna frekari upplýsingar um samtökin er að finna á heimasíðu samtakanna www.adhd.is
(1)

Um leið og ég þakka ráðherra fyrir að taka loks af skarið, vil ég ítreka þá ósk ADHD-samtakanna að ráðherra fylgi málinu...
31/10/2026

Um leið og ég þakka ráðherra fyrir að taka loks af skarið, vil ég ítreka þá ósk ADHD-samtakanna að ráðherra fylgi málinu eftir af festu: Tryggi vandaða endurskoðun á þeim göllum sem enn eru fyrir hendi í gildandi umferðarlögum varðandi ADHD-lyf og vanhæfismörk við stjórn ökutækis.

Í dag lýkur árlegum alþjóðlegum ADHD-vitundarmánuði og því við hæfi að minnast þess sem vel er gert og benda um leið á hvað betur má fara. Hér kýs ég að beina sjónum að breytingum á umferðarlögum frá 2019 og skorti á reglugerð þar að lútandi sem ekki fylgdi.

Menntaskólinn á Egilsstöðum hlaut hvatningarverðlaun ADHD samtakanna í ár fyrir ómetanlega þjónustu til nemenda með ADHD...
30/10/2026

Menntaskólinn á Egilsstöðum hlaut hvatningarverðlaun ADHD samtakanna í ár fyrir ómetanlega þjónustu til nemenda með ADHD og einhverfu. Verðlaunin voru afhent á málþinginu Þegar ADHD fylgir þér sem haldið var í Veislusmáranum.

Formaður ADHD samtakanna, Vilhjálmur Hjálmarsson og Stefán Magnússon, varaformaður ÖBÍ afhentu Helgu Þorleifsdóttur, félagsráðgjafa og verkefnastýru nemendaþjónustu hjá Menntaskólanum á Egilsstöðum - viðurkenningarskjal og glæsilegt málverk eftir Dagmar Róbertsdóttur, sem er betur þekkt undir listamannanafninu Dalla.

Í ávarpi sínu við verðlaunaafhendinguna fór Vilhjálmur yfir rökstuðning stjórnar fyrir valinu og sagði m.a. eftirfarandi:

Hvatningarverðlaunum ADHD samtakanna er ætlað að varpa ljósi á það góða starf sem unnið er víða um land í þágu fólks með ADHD. Verðlaunin hafa verið veitt einstaklingum, fagfólki, hópum, fyrirtækjum og stofnunum sem hafa sýnt frumkvæði, metnað og framúrskarandi framlag á þessu sviði.

Fyrsti handhafi verðlaunanna var Urður Njarðvík árið 2021 fyrir rannsóknir sínar á ADHD og skyldum röskunum. Í kjölfarið voru Skógarmenn KFUM og KFUK heiðraðir fyrir verkefnin „Stelpur í stuði“ og „Gauraflokkinn“, sumarbúðir í Vatnaskógi fyrir stelpur og stráka með ADHD. Þá hlaut starf Sjónarhóls viðurkenningu fyrir ómetanlegan stuðning við forráðamenn barna sem ekki fá þá þjónustu sem þau þurfa á að halda. Hljóðbókasafn Íslands var sömuleiðis heiðrað fyrir mikilvæga þjónustu við börn og fullorðna með ADHD sem eiga erfitt með að nýta sér prentað mál. Á síðasta ári hlaut Sara Rós Kristinsdóttir hvatningarverðlaun samtakanna fyrir ómetanlegt framlag sitt til fræðslu og valdeflingar fólks með ADHD og aðstandenda þeirra.

Að þessu sinni ákváðum við að beina athygli okkar að skólasamfélaginu, allt frá leikskóla- til framhaldsskólastigs. Það er staðreynd að í almennu fimm ára kennaranámi er enn aðeins í boði einn valáfangi sem fjallar meðal annars um raskanir á borð við ADHD og einhverfu. Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar hafa litlar breytingar orðið á þessu sviði, hvort heldur í Kennaraháskóla Íslands á sínum tíma eða síðar innan Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Vegna þessa hafa ADHD samtökin lagt aukna áherslu á fræðslu fyrir kennara, skólastjórnendur og sveitarfélög. Sú vinna hefur skilað árangri, og víða um land má finna skóla og sveitarfélög sem hafa tekið stór skref í átt að betri stuðningi. Þar má meðal annars nefna Borgarhólsskóla á Húsavík ásamt Hammarsskóla og Barnaskóla Vestmannaeyja.

Í ár kusum við þó að horfa til framhaldsskóla sem hefur sýnt frumkvæði og metnað með þeim hætti að aðrir skólar gætu sótt þangað innblástur.

Það er mér því sönn ánægja að tilkynna að handhafi Hvatningarverðlauna ADHD samtakanna árið 2026 er Menntaskólinn á Egilsstöðum.

Menntaskólinn á Egilsstöðum hefur um árabil verið í fararbroddi í stuðningi við framhaldsskólanemendur með ADHD, sem og aðrar taugaþroskaraskanir, þar á meðal einhverfu. Skólinn hóf snemma að þróa markvissar leiðir til að mæta þörfum þessa nemendahóps og hefur sýnt bæði frumkvæði og metnað við að skapa námsumhverfi þar sem ólíkar þarfir eru viðurkenndar og þeim mætt af skilningi, sveigjanleika og fagmennsku.

Það sem einkennir starf skólans er sú áhersla sem lögð er á að grípa nemendur strax við upphaf skólagöngu. Innan nemendaþjónustunnar er sérstaklega hugað að þörfum nemenda með ADHD. Nemendur eru boðaðir til viðtals þar sem farið er yfir þarfir þeirra, möguleg úrræði og þann stuðning sem getur nýst þeim í námi. Eftirfylgni er markviss og stuðningurinn sniðinn að aðstæðum og þörfum hvers og eins.

Skólinn leggur jafnframt ríka áherslu á að nemendur öðlist betri skilning á eigin ADHD og áhrifum þess á nám og daglegt líf. Með fræðslu, námsráðgjöf og hagnýtum stuðningi fá þeir tækifæri til að efla færni sína í skipulagi, tímastjórnun og námstækni, þekkja eigin styrkleika og finna þær leiðir sem henta þeim best.

Sveigjanleiki í námi, fjölbreytt námsmat, verkefnatímar og einstaklingsmiðuð úrræði styðja enn frekar við þessa nálgun.

Menntaskólinn á Egilsstöðum hefur einnig lagt sitt af mörkum til að miðla þekkingu og reynslu til annarra. Skólinn hefur meðal annars þróað gagnabanka á heimasíðu sinni með fræðslu og hagnýtum verkfærum um ADHD og nám sem nýtast bæði nemendum, foreldrum og fagfólki.

Sérstaða starfsins felst þó fyrst og fremst í þeirri heildarsýn að stuðningur við nemendur með ADHD og aðrar raskanir snýst ekki eingöngu um að aðlaga námið að þörfum þeirra. Hann snýst einnig um að efla sjálfsþekkingu, sjálfstæði og trú á eigin getu.

Markmiðið er að nemendur fái ekki aðeins aðstoð við að takast á við áskoranir námsins heldur öðlist jafnframt þekkingu og verkfæri sem nýtast þeim áfram í námi, starfi og daglegu lífi.

Og eins og góður vinur minn segir stundum: Þetta er til háborinnar fyrirmyndar.

Með Hvatningarverðlaunum ADHD samtakanna 2026 viljum við varpa ljósi á þessa frammúrskarandi nálgun og þakka Menntaskólanum á Egilsstöðum fyrir framsækið og metnaðarfullt starf í þágu nemenda með ADHD. Skólinn hefur með frumkvæði sínu og markvissum vinnubrögðum sýnt hvernig skilningur, snemmtækur stuðningur og einstaklingsmiðuð nálgun geta skapað raunveruleg tækifæri fyrir ungt fólk með ADHD til að nýta styrkleika sína og blómstra í námi og lífi.

Megi fordæmi Menntaskólans á Egilsstöðum verða öðrum skólum, menntayfirvöldum og stjórnvöldum leiðarljós til betri vegar.

”Þegar ADHD fylgir þér” nefnist málþing ADHD samtakanna sem haldið verður þann 30. október næstkomandi kl. 10-14.Meðal f...
28/10/2026

”Þegar ADHD fylgir þér” nefnist málþing ADHD samtakanna sem haldið verður þann 30. október næstkomandi kl. 10-14.

Meðal fyrirlesara er Guðrún Rakel Eiríksdóttir sviðstjóri forvarna hjá Virk. Hún er klínískur sálfræðingur að mennt og starfaði um árabil á sviði taugasálfræði. Starfar í dag sem sviðsstjóri forvarna hjá VIRK og hefur meðal annars unnið að rannsóknum og fræðslu um kulnun, streitu og vinnutengda líðan. Fyrirlestur hennar mun fjalla um ADHD og áhrif langvarandi streitu á einstaklinga með ADHD.

Örfá sæti laus: https://www.adhd.is/is/malthing-2026

”Þegar ADHD fylgir þér” nefnist málþing ADHD samtakanna sem haldið verður þann 30. október næstkomandi kl. 10-14.Meðal f...
28/10/2026

”Þegar ADHD fylgir þér” nefnist málþing ADHD samtakanna sem haldið verður þann 30. október næstkomandi kl. 10-14.

Meðal fyrirlesara er Sigrún Birna Sigurðardóttir sálfræðingur. Sigrún er sjálf með ADHD og móðir. Í fyrirlestrinum blandar hún saman faglegri þekkingu og eigin reynslu og fjallar um hvernig ADHD fylgir okkur inn í foreldrahlutverkið. Hún skoðar hvernig skipulag, tilfinningar, eigið taugakerfi og fyrri reynsla geta haft áhrif á uppeldið og hvað getur hjálpað þegar á reynir.

Örfá sæti laus: https://www.adhd.is/is/malthing-2026

”Þegar ADHD fylgir þér” nefnist málþing ADHD samtakanna sem haldið verður þann 30. október næstkomandi kl. 10-14.Meðal f...
27/10/2026

”Þegar ADHD fylgir þér” nefnist málþing ADHD samtakanna sem haldið verður þann 30. október næstkomandi kl. 10-14.

Meðal fyrirlesara er Valdís Hrönn Berg, viðskiptafræðingur og fjárhagsmarkþjálfi. Hún hefur síðastliðin fjögur ár starfað við að aðstoða einstaklinga í að ná betri tökum á persónulegum fjármálum og skapa sér heilbrigðara og jákvæðara samband við peninga. Valdís hefur sérstakan áhuga á tengslum ADHD og fjármála, þar sem hvatvísi, forðun, skipulagsáskoranir og tilfinningar á borð við skömm og streitu geta haft mikil áhrif á fjárhagslega hegðun.

Nokkur sæti enn laus í sal: https://www.adhd.is/is/malthing-2026 https://www.adhd.is/is/malthing-2026

”Þegar ADHD fylgir þér” nefnist málþing ADHD samtakanna sem haldið verður þann 30. október næstkomandi kl. 10-14.Meðal f...
27/10/2026

”Þegar ADHD fylgir þér” nefnist málþing ADHD samtakanna sem haldið verður þann 30. október næstkomandi kl. 10-14.

Meðal fyrirlesara er Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og fjallar hún um náin sambönd og ADHD. Í fyrirlestrinum fer hún yfir ýmsar áskoranir og verkfæri sem nýtast í í nánum samböndum þegar annar eða báðir aðilar glíma við ADHD.

Nokkur sæti enn laus: https://www.adhd.is/is/malthing-2026

Afhverju geturðu ekki bara....?Skipulagt þig betur.Mætt á réttum tíma.Klárað það sem þú byrjar á.Haft betri stjórn á til...
22/10/2026

Afhverju geturðu ekki bara....?
Skipulagt þig betur.
Mætt á réttum tíma.
Klárað það sem þú byrjar á.
Haft betri stjórn á tilfinningunum.

Fyrir marga fullorðna með ADHD eru þetta ekki einfaldir hlutir.
Meiri Skilningur. Minni fordómar. Betri stuðningur.

Kynntu þér Þegar ADHD fylgir þér - Málþing ADHD samtakanna 2026. Hlekkur í fyrstu athugasemd.

Address

Mannréttindahúsið, Sigtún 42
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 15:00

Telephone

+3545811110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ADHD samtökin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to ADHD samtökin:

Shortcuts

Share