Samkeppniseftirlitið

Call Directions Website Contact the organization

Samkeppniseftirlitið Samkeppniseftirlitið hefur það að leiðarljósi að standa vörð um heilbrigða samkeppni á Íslandi. Að því starfi kemur öflugur hópur sérfræðinga hjá SKE.

The Icelandic Competition Authority promotes effective competition, by enforcing the competition rules of the EEA Agreement and the Icelandic Competition law Act No. 44/2005.

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Ása hf. (áður Síminn hf.) á Öryggismiðstöð Íslands hf. og Opnum kerfum hf. gegn...
30/10/2026

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Ása hf. (áður Síminn hf.) á Öryggismiðstöð Íslands hf. og Opnum kerfum hf. gegn skilyrðum sem samrunaaðilar hafa skuldbundið sig til að fara eftir. Rannsókn eftirlitsins leiddi í ljós að samrunarnir kynnu að styrkja markaðsstöðu samstæðu Ása, meðal annars á fjarskiptamarkaði, og skapa auknar aðgangshindranir fyrir keppinauta.

Skilyrðin sem sett eru með sáttinni miða að því að vinna gegn mögulegum skaðlegum áhrifum samrunanna á samkeppni á viðkomandi mörkuðum.

Nánar er fjallað um málið í frétt á vef Samkeppniseftirlitsins, þar sem einnig má nálgast sáttina.

Hlekkur er á frétt Samkeppniseftirlitsins í fyrstu athugasemd 👇

Í fróðleiksmola á vef Samkeppniseftirlitsins er fjallað um tilgang stjórnvaldssekta og mikilvægi þeirra við að tryggja a...
29/10/2026

Í fróðleiksmola á vef Samkeppniseftirlitsins er fjallað um tilgang stjórnvaldssekta og mikilvægi þeirra við að tryggja að samkeppnislögum sé fylgt.

Markmið stjórnvaldssekta er ekki einungis að bregðast við brotum sem þegar hafa átt sér stað heldur einnig að koma í veg fyrir brot í framtíðinni. Þær gegna því mikilvægu hlutverki við að stuðla að virkri samkeppni.

Sektum er einnig ætlað að hafa varnaðaráhrif, fæla fyrirtæki frá ólögmætu samráði og misnotkun markaðsráðandi stöðu og koma í veg fyrir að brot á samkeppnislögum séu arðbær.

Í fróðleiksmolanum má jafnframt sjá yfirlit yfir samanlagðar stjórnvaldssektir vegna brota á samkeppnislögum á árunum 2001–2025.

Sjá hlekk á fróðleiksmolann um stjórnvaldssektir í fyrstu athugasemd. 👇

Í fróðleiksmola á vef Samkeppniseftirlitsins er fjallað um hvernig misnotkun markaðsráðandi stöðu getur dregið úr samkep...
23/10/2026

Í fróðleiksmola á vef Samkeppniseftirlitsins er fjallað um hvernig misnotkun markaðsráðandi stöðu getur dregið úr samkeppni og skaðað hagsmuni neytenda.

Markaðsráðandi staða er ekki ólögleg í sjálfu sér. Fyrirtæki mega vaxa og öðlast sterka stöðu á markaði en þeim er óheimilt að misnota hana til að hindra eða raska samkeppni.

Þegar samkeppni veikist getur aðhald með verðlagningu minnkað, hvati til nýsköpunar dvínað og valkostum neytenda fækkað. Því skiptir máli að markaðir séu opnir og fyrirtæki geti keppt á eigin verðleikum.

Sjá hlekk á fróðleiksmola um misnotkun á markaðsstyrk sem bitnar á neytendum í fyrstu athugaemd 👇

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur í dag fellt úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli Landsvirkjunar og vísað ...
19/10/2026

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur í dag fellt úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli Landsvirkjunar og vísað málinu til nýrrar meðferðar hjá eftirlitinu.

Í ákvörðuninni hafði Landsvirkjun verið gert að greiða 1,4 milljarða króna stjórnvaldssekt vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu.

Þá tekur áfrýjunarnefndin ekki afstöðu til þess hvort Landsvirkjun hafi brotið gegn samkeppnislögum, heldur telur hún að rannsaka þurfi tiltekin atriði málsins nánar áður en hægt sé að skera úr um ætluð brot.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit hjá Ölgerðinni í morgun, 9. október, vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðari...
09/10/2026

Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit hjá Ölgerðinni í morgun, 9. október, vegna rannsóknar á ætluðum brotum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. gegn 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, sem bannar misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Húsleitin fór fram á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur.

Sjá nánar í frétt á vef Samkeppniseftirlitsins. Hlekkur í fyrstu athugasemd. 👇

Áhrif samruna á nýsköpun, framleiðni, fjárfestingar og þróun samkeppni á markaði til lengri tíma voru í brennidepli á ár...
08/10/2026

Áhrif samruna á nýsköpun, framleiðni, fjárfestingar og þróun samkeppni á markaði til lengri tíma voru í brennidepli á árlegri ráðstefnu sænska samkeppniseftirlitsins, Konkurrensverket, Pros and Cons of Merger Control, sem haldin var í Stokkhólmi.

Hin svokölluðu dýnamísku áhrif samruna voru meðal þess sem þar var rætt. Einnig var fjallað um samkeppnishæfni Evrópu, hagræðingu af samrunum og hvað þurfi til að skilyrði í samrunamálum skili tilætluðum árangri.

Í fréttinni má jafnframt horfa á upptökur frá ráðstefnunni sem fram fór á ensku.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um meðferð samrunamála hjá Samkeppniseftirlitinu og sagt að eftirlitið grípi margfalt o...
30/09/2026

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um meðferð samrunamála hjá Samkeppniseftirlitinu og sagt að eftirlitið grípi margfalt oftar inn í samruna en systurstofnanir á Norðurlöndum.

Af því tilefni birtir Samkeppniseftirlitið upplýsingar um samrunamál hér á landi og skýrir m.a. hvað hafa þarf í huga þegar meðferð slíkra mála á Norðurlöndum er borin saman.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Erlent samstarf styrkir samkeppniseftirlit á Íslandi. Samkeppniseftirlitið á í víðtæku samstarfi við samkeppnisyfirvöld ...
18/09/2026

Erlent samstarf styrkir samkeppniseftirlit á Íslandi. Samkeppniseftirlitið á í víðtæku samstarfi við samkeppnisyfirvöld á Norðurlöndum, í Evrópu og víðar um heim.

Samstarfið veitir aðgang að sérfræðiþekkingu og reynslu systurstofnana og stuðlar að vandaðri og samræmdri framkvæmd samkeppnisreglna hér á landi.

Í ársskýrslu Samkeppniseftirlitsins fyrir árið 2025 er fjallað nánar um samstarfið við meðal annars ESA, evrópsk og norræn samkeppnisyfirvöld, OECD og ICN.

🔗 Hlekkur á fréttina er í fyrstu athugasemd.

Rannsókn á samruna Heklu og Bílson lauk að frumkvæði samrunaaðila.Samrunaaðilar drógu tilkynningu um fyrirhugaðan samrun...
16/09/2026

Rannsókn á samruna Heklu og Bílson lauk að frumkvæði samrunaaðila.

Samrunaaðilar drógu tilkynningu um fyrirhugaðan samruna Heklu og Bílson til baka í júlí, áður en rannsókn Samkeppniseftirlitsins lauk og áður en umbeðnar upplýsingar höfðu borist.

Samkeppniseftirlitið tók því eðli málsins samkvæmt ekki endanlega afstöðu til markaðsskilgreininga eða áhrifa samrunans á samkeppni.

🔗 Nánar í frétt Samkeppniseftirlitsins – hlekkur í athugasemd.

Samkeppnishindranir í íslensku regluverki eru talsvert meiri en að jafnaði í ríkjum OECD. Samkvæmt mati OECD gætu umbætu...
14/09/2026

Samkeppnishindranir í íslensku regluverki eru talsvert meiri en að jafnaði í ríkjum OECD. Samkvæmt mati OECD gætu umbætur á regluverki hér á landi aukið landsframleiðslu á mann um 6,5 prósent á tíu árum.

„Við þurfum líka að tala fyrir samkeppni, benda á hindranir og tækifæri til úrbóta,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Sjá hlekk á frétt í fyrstu athugasemd 👇

Address

Borgartún 26
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Friday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00

Telephone

+3545850700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samkeppniseftirlitið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Samkeppniseftirlitið:

Shortcuts

Share

Nearby government services